Náttúruhlaup logo

Everest maraþon

Everest maraþon

Erfiðleikastig
Erfið

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Hvað er innifalið
Allt nema flug frá Íslandi og máltíðir í Kathmandu

Lengd ferðar
20 dagar

Hópastærð
Hámark 16

Náttúruhlaupin í samstarfi við Íslenska Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á spennandi hlaupaferð til Nepals, Everest maraþonið, hæsta maraþon í heimi.
Tenzing Hillary Everest Maraþonið er alþjóðlegur íþróttaviðburður þar sem hlaupið er úr Grunnbúðum Everst, 42 km leið niður í Namche Basar, höfuðstað Sherpana.  Hlaupið fer fram 29. mai ár hvert en það er dagurinn sem Tenzing Norgy Sherpa og Edmund Hillary komu á topp Everest 1953 í fyrstu uppgöngunni á fjallið.  
2020 er 18 sinn sem hlaupið er haldið og koma þátttakendur alls staðar að úr heiminum.  Boðið er upp á 60 km ultra marathon, 42 km marathon og 21 km hálfmaraþon.  Þó að hlaupið sé eftir göngustígum sem liggja að mestu niður á við þá er griðarlega erfitt að hlaupa í þetta mikilli hæð.  Í ferðinni er gert ráð fyrir góðum tíma til þess að aðlagast hæðinni þegar gengið er upp í grunnbúðirnar fyrir hlaupið.  
Fararstjórar í ferðinni eru þau  Halldóra Gyða Matthíasdóttir og Helga María Heiðarsdóttir.
Halldóra er hlaupaleiðsögumaður og hlaupari. Hún er með mikla reynslu af fjallahlaupum þar sem hún hefur hlaupið eitt 100 mílna (170 km) utanvegahlaup, hún hefur farið sjö utanvegahlaup sem eru lengri en 100 km og er eina íslenska konan sem hefur klárað Mt. Esja Ultra Iceland (11 ferðir upp að Steini).  Auk þess hefur hún klárað fimm Ironman keppnir og nokkur maraþon. Hún er Landvættur númer átta og “En Svensk Klassiker” númer 10834. Auk þess hefur hún gengið í grunnbúðir Everst og þekki því af eigin raun það að hlaupa í hæð.
Helga María  er reyndur leiðsögumaður, fjallamaður og náttúruhlaupari. Hún er menntaður náttúruland- og jöklafræðingur og er mjög fróð um náttúru og jarðfræði og hefur gaman af því að deila með öðrum.
Helga María hefur ferðast víða og hún þekkir vel ferðamennsku í hæð og ferðalög á framandi slóðum. Hún mun leiða hópinn í göngunni upp í grunnbúðir Everest og tryggja sem besta hæðaraðlögun. En góð hæðaraðlögun er lykilatriði til að upplifunin í hlaupinu verði sem ánægjulegust.
Það má lofa því að það er aldrei leiðinlegt í kringum Halldóru og Helgu Maríu.
Innifalið í verði:

Undirbúningsfundur með leiðsögumanni fyrir brottför
Skráning í Everest maraþonið, keppninsgögn og keppnisbolur
Hátíðarkvöldverður í Lukla að loknu hlaupi og í Kathmandu 2. júní
Íslensk leiðsögn
Ráðleggingar varðandi flug
Akstur til og frá flugvelli í Kathmandu
Hótel með morgunverði í Kathmandu í 4 nætur
Skoðunarferð um Kathmandu með staðarleiðsögumanni
Innanlandsflug til og frá Lukla
Nepalskur gönguleiðsögumaður og aðstoðarleiðsögumaður
Burður á farangiri á meðan á göngu stendur, 1 burðarmaður á hverja 2 farþega
Tryggingar staðarleiðsögumanna og burðarmanna
Leyfisgjöld og aðgangur í Khumbu þjóðgarðinn
Allur matur og gisting í gistihúsum á göngunni
Lyfjakista með sérhæfðum lyfjum og súrefniskútur

Ekki innifalið í verði:
Flug til og frá Kathmandu
Vegabréfsáritun til Nepal, keypt á flugvellinum og kostar 40 USD
Matur í Kathmandu, annar en morgunverður
Þjórfé til heimamanna
Persónuleg eyðsla eins og aðgangur að neti á göngunni, drykkir og hleðsla á raftækjum.

Áhætta varðandi ferðir í hæð:
Við hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum erum full meðvituð um þá ábyrgð og áhættu sem felst í því að fara með fólk upp í hæð og reynum eftir fremsta megni að standa eins vel að undirbúningi og framkvæmd ferða eins og mögulegt er.
Fjallaleiðsögumenn hafa trúnaðarlækni, Gunnar Guðmundsson lungnalækni og einn helsta sérfræðing Íslands á sviði háfjallaveiki. Fyrir utan það að vera ávallt til taks ef ráðgjafar er þörf þá hefur Gunnar ráðlagt um sérhæfð lyf sem eru alltaf með í ferðum og verið með markvissa þjálfun fyrir leiðsögumenn varðandi háfjallaveiki, forvarnir, meðferð og lyfjagjöf.
Í ferðum til Nepal þar sem gist er í yfir 4500m hæð hafa hóparnir okkar súrefniskút meðferðis, sem hægt er að nota ef alvarleg tilfelli af háfjallaveiki koma upp. Við erum með lyfjakistu með háfjallalyfjum og öðrum lyfjum sem gæti verið þörf á.
Allir leiðsögumenn hafa lokið Wilderness First Responder skyndihjálpanámskeiði og eru þjálfaðir í að fylgjast vel með heilsufari og líðan þátttakenda og vera vakandi fyrir einkennum háfjallaveiki. https://www.mountainguides.is/tour/wfr-course 
Leiðsögumenn eru með gerfihnattasíma í öllum ferðum.

Dagskrá

Dagur 1, 15. maí - Kathmandu (1300m)
Lent í Kathmandu þar sem tekið er á móti hópnum og ekið á hótelið, sem er gömul höll staðsett í miðbæ Kathmandu. Upplagt að nota það sem eftir lifir dags til þess að slappa af á hótelinu eða rölta um líflegar götur Kathmandu.
 

Dagur 2, 16. maí - Kathmandu
Skoðunarferð um hina heillandi borg Kathmandu þar sem við komum við á öllum helstu kennileitum og kynnumst nánar þeim lystisemdum sem borgin býr yfir, heilögum kúm og hraðskreiðum leigubílum. Gist á sama hóteli, morgunverður

Dagur 3, 17.  maí - Kathmandu – Lukla – Phakding (2610m)
Í dag kveðjum við Kathmandu og fljúgum til Lukla þar sem leiðsögusjerpi hópsins tekur á móti okkur. Gönguferðin hefst með göngu upp til þorpsins Phakding sem er að finna í fallegum dal og merkilegt nokk að þessi fyrsta ganga er að mestu leyti niður í  móti. 2-3ja tíma ganga, um 8 km. Gist á gistihúsi, fullt fæði
 

Dagur 4, 18.  maí - Phakding - Namche Basar
Í dag liggur leiðin upp á við til höfuðborgar sjerpanna og flestir eiga sín fyrstu kynni af hengibrúm á leiðinni þegar farið er yfir ána Dudh Kosi (Mjólká). 5-6 tíma ganga, ca 15 km. Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 5, 19. maí - Namche Basar aðlögunarhlaup (3440m)

Dagur til þess að skoða þessa sjerpaborg nánar í fylgd leiðsögumannsins og fara í stutta göngu upp í 4.000 m hæð þar sem við sjáum Everst í fyrsta skipti í ferðinni.  Á bakaleiðinni tökum við létt skokk niður i móti.  Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 6, 20. maí -  Namche Basar – Khumjung (3.740m)

Það er stutt ganga yfir til Khumjung en þar er margt að skoða.  Edmund Hillary byggði þar grunnskóla sem er enn starfræktur.  Klaustrið geymir frægt höfuðleður snjómannsins ógurlega sem Herge notaði sem fyrirmynd í bók sinni Tinni í Tíbel.  Auk þess eru verslanir með ullarvörur unnar úr jakuxaull og margt fleria. 2-3ja tíma ganga, ca 2-3 km. Gist á gistihúsi, fullt fæði. 

Dagur 7, 21. maí - Kumjung - Tengboche – Deboche (3820m)

Leiðin í dag liggur áfram og upp í sannkallað fjallalandslag. Tengboche er einn helgasti staður Nepal og þar er klaustur hvaðan njóta má útsýnis til hinna tilkomumiklu tinda AmaDablam, Lhotse og Everest. Eftir að hafa notið útsýnisins og skoðað klaustrið er haldið niður til litla þorpsins Deboche þar sem gist er.5-6 tíma ganga, 6-8 km. Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 8, 22. maí - Deboche – Dingboche (4410m)
Haldið upp eftir dalnum sem Imja Kola áin fellur um og enn bætist í fjöldann af tindum sem birtast og við ættum að sjá Island Peak og jafnvel Makalu – fimmta hæsta fjall heims. Gist í þorpinu Dingboch. 5-6 tíma ganga, ca 12 km.Gist á gistihúsi, fullt fæði.

Dagur 9, 23. maí - Dingboche aðlögunarhlaup
Til þess að tryggja góða hæðaraðlögun er dvalið áfram í þorpinu Dingboche næstu nótt og gengið inn dalinn áleiðs að Isand Peak.  Eftri hádegismat í þorpinu Chukung er tekið rólegt skokk til baka til Dingboche.  Gist á gistihúsi,  fullt fæði.

Dagur 10, 24. maí - Dingboche – Lobuche (4910m)
Gangan heldur áfram upp í móti til þorpsins Lobuche sem er eitt af síðustu byggðu bólunum áður en komið er upp í grunnbúðir. 5 tíma ganga, ca. 9 km. Gist á  gistihúsi, fullt fæði

Dagur 11, 25. maí - Lobuche – Gorakshep (5140)
Gangan í dag liggur upp í efstu byggðir Kumbudalsins, rétt neðan við grunnbúðir Everest.  Umkring hæstu fjöllum heims förum við í létta göngu til þess að aðlagast þunnu loftinu.  5 tíma ganga, ca 6 km. Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 12, 26. maí - Ghorakshep – Kalapattar (5550m)
Frá þessu litla þorpi sem virðist vera á hjara veraldar liggur leið okkar til baka niður á við til þorpsins Thukla. Á leiðinni göngum við upp á Kalapattar fjallið og teygjum í okkur dásemd fjallahringsins. 2-3ja tíma ganga, um 2km. Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 13, 27. maí - Ghorakshep - grunnbúðir Everest 5.365m
Stuttur göngudagur yfir í grunnbúðir Everest sem eru iðandi af lífi þessa dagana.  Það er fágætt að göngumenn fái að gista í Grunnbúðunum.  3ja -4ra tíma ganga, ca. 6 km. Gist í tjaldi, fullt fæði.  

Dagur 14, 28. maí - Grunnbúðir Everest
Hvíldardagur í Grunnbúðum og undirbúningur undir hlaupið. Gist í tjaldi, fullt fæði.

Dagur 15 - 29. maí - Hlaupadagurinn
Hlaupið til Namche Basar. 42 km FULLT MARAþON
Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 16, 30. maí - Namche Basar – Monjo (2835m)
Rólegur morgunn. Í eftirmiðdaginn er gengið niður Mjólkurárdalinn í þorpið Monjo. 4-5 tímar, ca 8 km. Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 17, 31. maí - Monjo – Lukla (2480m)
Síðasti göngudagurinn leiðir hópinn til bæjarins Lukla. 4-5 tíma ganga, um 10 km. Gist á gistihúsi, fullt fæði

Dagur 18, 1. júní - Lukla – Kathmandu
Flogið til baka til Kathmandu og akstur á hótel þar sem gist er næstu tvær nætur. Eftirmiðdagur og kvöldið frjálst. Gist á hóteli með morgunverð. Hádegis- og kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 19, 2. júní - Kathmandu
Frjáls dagur til þess að skoða Kathmandu, fara í nudd eða slaka á eftir ferðina á vönduðu hóteli. Gist á hóteli með morgunverð. Hádegis- og kvöldverður ekki innifalinn.

Dagur 20, 3. júní - Heimferð
Akstur á flugvöll – heimferð

Tryggingar - World Nomads

Öll vitum við að slys gera ekki boð á undan sér og ef að þau henda á ferðalagi er mikilvægt að haf örugga tryggingu. Flest erum við með ferðatryggingar af einhverju tagi ýmist í kortum eða inni í heimilistrygginunum okkar. Oft duga þessar tryggingar en við mælum með því að þú kynnir þér nákvæmlega hvaða bóta/aðstoðar þínar tryggingar ná til. Ef ferðast er í hæð má vera að þú þurfir að fá þér auka tryggingu. Við höfum góða reynslu af viðskiptum við World Nomads sem eru sérhæfð í tryggingum fyrir ferðalanga af öllu tagi. Við hjá Fjallaleiðsögumönnum höfum góða reynslu af þeim.

Bóka ferð

Ferðina er hægt að bóka fyrir einstaklinga og hópa, vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar.

Currency Settings

Choose your currency

Please note that our currency exchange rate is taken from the Icelandic Central Bank and might differ slightly from your bank's currency rate. Additionally, all charges are made in Icelandic Krona (ISK).

Select currency:

Iceland Rovers - Search

Looking for something special?

Skráðu þig á póstlista Íslenskra Fjallaleiðsögumanna!

* verður að vera útfyllt

Hafa samband

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.