Gengið á Dyrhamar

Dyrhamar

Toppaðu Dyrhamar í sumar með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum

Mynd © Ívar Finnbogason

Dyrhamar

Krefjandi en stórbrotin ferð með mögnuðu útsýni frá toppnum.

Erfiðleikastig
Krefjandi

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Hvað er innifalið
Leiðsögn sérmenntaðs leiðsögumanns og allur nauðsynlegur búnaður til jöklaferða

Þú útvegar
Sjá búnaðarlista

Upphafsstaður
Skáli Íslenskra Fjallaleiðsögumanna á tjaldstæðinu í Skaftafelli

Hópastærð
Lágmark 3 og hámark 6 í línu

Dyrhamar er einn af fallegustu tindum landsins. Þó að fyrir flesta sé tindurinn ekki árennilegur þá er nokkuð auðvelt að klífa hann í línu. 

Fjalló býður nú í fyrsta skipti upp á fastar brottfarir á Dyrhamar. Tilvalin áskorun fyrir þá sem þegar hafa farið á Hvannadalshnúk og Hrútfjallstinda og vantar nýja áskorun - og svo náttúrulega fyrir þá sem hafa sett sér það markmið að klífa 100 hæstu tinda landsins. 
Búast má við að dagurinn taki allt að 12-15 klst og reynir því á úthald þátttakenda en í fylgd reyndra fjallaleiðsögumanna er ekki þörf á neinni sérkunnáttu í ferðamennsku á hájöklum. Allur jökla- og öryggisbúnaður er innifalinn í verði.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn leggja áherslu á öryggi og persónulega þjónustu í litlum hópum. Við takmörkum því fjölda þátttakenda við 6 manns á hvern leiðsögumann. 
Eins og með aðrar ferðir Fjalló er einnig hægt að bjóða upp á Dyrhamar sem sérferð, mögulega einnig á fjallaskíðum. 
Fyrir 100 tinda safnara getum við boðið upp á sérferðir á Dyrhamar og fleiri fjöll á Öræfajökli. 
Athugið að lágmarksfjöldi þátttakenda til að staðfesta brottför er 3.

Lágmarks aldur: 16

Búnaðarlisti

Dagsferð á Öræfajökul

Hvannadalshnjúkur / Hrútafellstindar / Þverártindsegg

  • Bakpoki 30-45L
  • Vatns og vindheldur öndunarfatnaður, buxur og jakki
  • Sterkir gönguskór (hægt að leigja af ÍFLM)
  • Legghlífar
  • Síðerma bolur úr ull eða gerviefnum
  • Göngubuxur eða fleece buxur
  • Ullarsokkar / göngusokkar
  • Góð sólgleraugu cat. 3-4
  • Sólarvörn / fyrir andlit og varir (SPF 30 eða meira)
  • Hlý peysa (ull eða fleece)
  • Auka peysa til að nota í pásum og á köldum dögum (eða léttur dún / fiber jakki
  • Húfa og vettlingar (þunna og þykka)
  • Nesti (2-6 samlokur og súkkulaði og annað nasl)
  • Vatn (allt að 3L, leitið ráða hjá leiðsögumanni fyrir ferð)
  • Myndavél
  • Göngustafi (stillanlega skíðastafi)

Snemma á vorin (apríl, maí) er nauðsynlegt að vera með hlýrri föt og ekki úr vegi að hafa einnig skíðagleraugu og vindeldar lúffur/vettlinga með í för.

Frekari upplýsingar:

Fatnaður:

Að fara á Hnúkinn tekur milli 10 og 15 tíma að jafnaði. Búast má við hitastigi á bilinu –10°C og upp í 20°C á hvaða árstíma sem er. Besta leiðin til að vera undirbúinn undir þennan mikla hitamun er að klæða sig í lögum. Þannig er hægt að fara úr í miklum hita eða auka við fatnað eftir því sem ofar dregur og kólnar.

Það er mjög mikilvægt að klæðast fatnaði næst húðinni sem ekki dregur í sig raka. Ull og ýmis gervi efni eru mjög góð. Bómull er alger bannvara á fjöllum! Útivistarverslanir hafa mikið framboð af góðum innanundirfatnaði og geta gefið góð ráð um val á honum. Þunnir langerma bolir gefa besta vörn á sólar dögum!

Matur og drykkur:

Á meðan á fjallgöngunni stendur er stoppað nokkrum sinnum í lengri og skemmri tíma til að nærast og drekka. Mjög gott er að hafa nesti sem samanstendur af sælgæti, t.d. súkkulaði, sem borða má í stuttum pásum og samlokum sem gefa langtíma orku og borða má í lengri hléum.

Það er sjaldgæft að göngumenn nái ekki toppnum vegna þreytu. Þegar slíkt kemur fyrir er það venjulega vegna vöðvakrampa. Vöðvakrampar verða til vegna samblands áreynslu, vökva- og steinefnaskorts. Besta leiðin til að koma í veg fyrir krampa er að drekka mikið af vökva.

Hægt er að blanda ýmiskonar orkudrykkjum út í vatn til að bæta upp steinefna- og orkuskort. Best er að velja orkudrykki sem hafa mikið af steinefnum en ekki eingöngu kolvetni. Styrkur blöndunnar ætti að vera um ½ af því sem framleiðandi mælir með. Vatnið ætti að bera þannig að hægt sé að ná í það á göngu og ekki þurfi alltaf að taka af sér bakpokann til að drekka.

Góður kolvetnaríkur morgunmatur hjálpar til [múslí, brauð, o.þ.h.] og ekki er verra að drekka mikið áður en lagt er af stað. Kaffidrykkju ætti þó að stilla í hóf þar sem hún leiðir til frekara vökvataps.

Drekka, drekka,og drekka svo meira!

Æfingar:

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem leggja í göngu á Hvannadalshnjúk með ÍFLM ná toppnum. Þegar það gerist ekki er það oftast vegna veðurs. Engin ætti þó að vanmeta Hnjúkinn. Gangan er löng og dagurinn erfiður. Jafnvel fyrir fólk í mjög góðu formi!

Allir ættu því að æfa sig áður en lagt er á brattann. Esjan, Móskarðshnúkar, Vífilfell, Skarðsheiði og Akrafjall eru nokkur dæmi um fjöll sem eru aðgengileg og skemmtileg til að byggja upp þol.

Kær kveðja og góða ferð,

Starfsfólk Íslenskra fjallaleiðsögumanna

Bóka ferð

Ferðina er hægt að bóka fyrir einstaklinga og hópa, vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar.

Currency Settings

Choose your currency

Please note that our currency exchange rate is taken from the Icelandic Central Bank and might differ slightly from your bank's currency rate. Additionally, all charges are made in Icelandic Krona (ISK).

Select currency:

Iceland Rovers - Search

Looking for something special?

Skráðu þig á póstlista Íslenskra Fjallaleiðsögumanna!

* verður að vera útfyllt

Hafa samband

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.