Tilboð

Fjórhjólaferðir með leiðsögn skammt frá Reykjavík

Tuttugu mínútum frá Reykjavík endar malbikið og hraunið tekur við. Frá nýrri bækistöð okkar við Litlu Kaffistofuna er ekið út í hrjúft háhitalandslag í hlíðum Hengils með leiðsögumönnum sem þekkja svæðið út og inn. Ferðinni fylgir áhugaverð leiðsögn, góður búnaður og við fylgjum ýtarlegum öryggisreglum í allri okkar starfsemi enda höfum við rekið ævintýramennsku á Íslandi frá 1994. Til að fagna opnun nýju bækistöðvarinnar við hina sögufrægu Litlu Kaffistofu bjóðum við 20% afslátt af þessum skemmtilegu fjórhjólaferðum.

Tilboðið: 20% afsláttur af fjórhjólaferðum frá Litlu Kaffistofunni.

Bókunartímabil: 18. júní – 30. apríl 2027

Ferðatímabil: 18. júní – 30. apríl 2027

Fjórhjólaferðirnar

Það sem er innifalið

Leiðsögumaður, fjórhjólið, hlífðargalli, hjálmur, lambhúshetta og öryggiskynning fyrir ferðina. Þú kemur í léttum og þægilegum fatnaði, við sjáum um hitt.

Gott að vita

  • Ökuskírteini er skilyrði fyrir ökumenn og tveir eru á hverju fjórhjóli.
  • Þeir sem ferðast einir, og hópar með ójafnri tölu, greiða gjald fyrir einstaklingsakstur á staðnum.
  • Ferðirnar eru ekki við hæfi barna 7 ára og yngri; eitt barn má fylgja hverjum fullorðnum.
  • Klæddu þig eftir íslensku veðri: hlýtt undirlag eða millilag og vertu í vatnsheldum skóm.

Bókaðu fjórhjólaferð með leiðsögn í dag og fáðu 20% afslátt!

Raða eftir
Ný ferð

Upplifðu hreina orku Íslands í þessari hressandi fjórhjólaferð um háhitasvæðið við Hengil. Ferðin hefst við Litlu Kaffistofuna en þaðan er ekið um stórbrotna náttúruna í Svínahrauni, stoppað við magnaða sjónása og fræðst um orkunýtingu og nýsköpun.

1,5 klukkustundir
USD
148
118
Ný ferð

Upplifðu einstakt eldfjallalandslagið rétt utan við Reykjavík í þessari tveggja og hálfs tíma fjórhjólaferð um Hengilssvæðið og Jósepsdal. Steinsnar frá borginni er ekið um víðáttumikil hraun, dali og fjalllendi þar sem náttúran fær að njóta sín.