Erfiðleikastig

Við flokkum ferðirnar okkar eftir tæknilegri og líkamlegri áreynslu. Hér fyrir neðan eru lýsingar á hverju stigi.

  • Auðvelt: 1

    Aðgengilegt fyrir alla heilbrigða einstaklinga. Á jöklagönguferðum okkar þarft þú að geta gengið um ójafnt landslag í 3 klukkustundir, án þess að bera mikla þyngd

  • Miðlungs: 2

    Aðgengilegt fyrir alla sem eru við góða heilsu, stunda reglulega líkamsrækt og eru vanir að ganga í ósléttu landslagi.

  • Krefjandi: 3

    Hentar þeim sem eru líkamlega virkir og hafa einhverja reynslu af ferðalögum í fjalllendi með bakpoka. 6-7 klst. á göngu á dag.

  • Krefjandi: 4

    Krefst nokkurrar áreynslu og úthalds. Góð heilsa og einhver reynsla af göngu nauðsynleg. 6-8 klst. á göngu á dag. Oft þarf einnig að bera eigin búnað.

  • Erfitt: 5

    Erfið ferð aðeins ætluð fólki sem er líkamlega og andlega undirbúið fyrir mjög krefjandi en gefandi upplifun. Oft þarf fólk einnig að bera eigin búnað.

  • Mjög erfitt: 6

    Leiðangrar aðeins ætlaðir fólki sem er líkamlega og andlega búið undir mjög krefjandi en gefandi upplifun. Oft þarf fólk að bera eigin búnað. Reynsla af svipuðum leiðöngrum er skilyrði.