Þjálfun leiðsögumanna og öryggi

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa verið í fararbroddi hvað varðar öryggismál í íslenskri ferðaþjónustu. Í landi þar sem lög og reglugerðir hvað þetta varðar eru í lágmarki verða félög að setja sér eigin viðmið og stefnu. Stefna ÍFLM er að öryggismál fyrirtækisins séu í samræmi við bestu aðferðir hverju sinni. Þessi stefna sést m.a á fámennum hópum, menntun leiðsögumanna og okkar eigin starfsmannaþjálfun.

Helstu öryggisþættir í ferðum ÍFLM:

  • Vönduð hópstjórn og öruggt leiðaval (mikilvægasti þátturinn).
  • Trygg fjarskipti og öguð viðbrögð við óvæntum aðstæðum.
  • Fyrsta hjálp og björgunaraðgerðir.


Vakinn - Gæða- og umhverfisvottun ferðaþjónustunnar

Árið 2015 urðu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fyrst fyrirtækja sem bjóða upp á bakpoka- og gönguferðir á Íslandi, til að hljóta gæða- og umhverfisvottun Vakans. Með vottuninni staðfestist að Íslenskir Fjallaleiðsögumenn sinna gæða- og umhverfismálum af fagmennsku og heiðarleika.

By playing the video you accept Youtube’s use of cookies. More info.

Hreint og Öruggt - Loforð til viðskiptavina

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa innleitt verkferla og vinnubrögð sem uppfylla allar kröfur og skilyrði Ferðamálastofu um Hreina og Örugga ferðaþjónustu. Með þátttöku í verkefninu hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn gefið viðskiptavinum sínum og starfsfólki, eftirfarandi loforð:

  • Við fylgjum tilmælum yfirvalda og förum eftir gildandi sóttvarnareglum.
  • Við leggjum mikla áherslu á þrif og sóttvarnir og förum eftir leiðbeiningum Landlæknisembættisins.
  • Við þrífum sameiginlega snertifleti vel og reglulega og vöndum öll þrif.
  • Við upplýsum og þjálfum starfsfólk reglulega um auknar áherslur á þrif og sóttvarnir.
  • Við upplýsum og leiðbeinum viðskiptavinum um áherslur okkar á þrif og sóttvarnir.
  • Við leggjum mikla áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir; handþvott, notkun á handspritti, grímu og hönskum.
  • Við hugum vel að nándarmörkum.
  • Við notum snertilausar lausnir eins og kostur er.
  • Við hvetjum viðskiptavini til að huga vel að persónulegu hreinlæti og sóttvörnum.