Ferðaskilmálar

Eftirfarandi greiðslu- og bókunarskilmálar gilda fyrir Íslenska Fjallaleiðsögumenn (ÍFLM).
Dagsferðir
Íslenskir fjallaleiðsögumenn leitast við að tryggja það að verð sem birtast á vefsvæði þeirra byggist á réttum útreikningum og séu endanleg verð ferða. Öll verð eru í íslenskum krónum. Verð ferða eru staðfest við greiðslu.
Afbókanir
Allar afbókunarbeiðnir þarf að senda með tölvupósti. Í samræmi við viðskiptahætti innan íslenskrar ferðaþjónustu er ferðaþjónustuaðila skylt að innheimta eftirfarandi afbókunargjöld frá farþegum:
Afbókunargjöld
Dagsferðir á Íslandi
- Afbókanir sem berast meira en 24 tímum fyrir brottför eru endurgreiddar að fullu.
- Afbókanir sem berast innan 24 tíma fást ekki endurgreiddar.
Sérsniðnar ferðir
- Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 50% af heildarvirði ferðarinnar. Ferðina þarf að greiða að fullu minnst 9 vikum fyrir brottför.
Tryggingar
Við ráðleggjum öllum okkar viðskiptavinum að vera með ferðatryggingu.
Annað
Allar kvartanir verða að berast ÍFLM/IMG innan 5 daga frá brottfarardegi.
ÍFLM/IMG áskilja sér rétt til að breyta ferðatilhögun vegna veðurs eða akstursaðstæðna. Öllum ferðum getur verið breytt eða aflýst fyrirvaralaust á meðan á ferð stendur til að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsmanna ÍFLM/IMG. Engin ábyrgð er tekin á tapi, kostnaði vegna tafa, breytinga á flugi eða annarri þjónustu eða vegna verkfalla, slysa, skemmda, gáleysis, veðurs, stríðs, breyttum áætlunum eða öðrum þess háttar tilvikum. ÍFLM/IMG bera ekki ábyrgð á slysum eða dauðsföllum sem hægt er að rekja til gáleysis þátttakenda, aðgerðum þriðja aðila eða utanaðkomandi aðstæðna eins og veðurfars, náttúruhamfara, stríðs eða annarra álíka tilvika.
Leiðangrar
Staðfestingargjald
Greiða þarf staðfestingargjald fyrir all leiðangra og fæst það ekki endurgreitt. Upphæð staðfestingargjalds (oftast um 15-20% af heildar verðir), og hvenær skal greiða staðfestingargjald, er misjafnt eftir ferðum og er tiltekið í upplýsingapakka leiðangurs sem hægt er að nálgast á heimasíðu ÍFLM/IMG og/eða í tölvupóstsamskiptum milli viðskiptavinar og ÍFLM/IMG í bókunarferli.
Afbókanir
Allar afbókunarbeiðnir þarf að senda með tölvupósti. Í samræmi við viðskiptahætti innan íslenskrar ferðaþjónustu er ferðaþjóni skylt að innheimta eftirfarandi afbókunargjöld frá farþegum:
Afbókunargjöld
ÍFLM/IMG áskilja sér rétt til að innheimta eftirfarandi afbókunargjöld vegna kostnaðar:
Leiðangrar á Íslandi:
- 50% af virði ferðar fæst endurgreitt ef afbókun berst að minnsta kosti 14 dögum fyrir brottför ferðar.
- 25% af virði ferðar fæst endurgreitt ef afbókun berst 13 - 8 dögum fyrir brottfarardag.
- 0% af virði ferðar fæst endurgreitt ef afbókun berst innan 7 daga fyrir brottfarardag.
Leiðangrar erlendis:
- 50% af virði ferðar fæst endurgreitt ef afbókun berst 90 - 180 dögum, eða fyrr, fyrir brottför ferðar.
- 0% af virði ferðar fæst endurgreitt ef efbókun berst innan þriggja mánaða fyrir brottfarardag.
Tryggingar
Við ráðleggjum öllum okkar viðskiptavinum að vera með ferðatryggingu.
Gildandi verð
Öll verð sem vitnað er í eða birt eru í gjaldskrám okkar, byggja á núverandi innkaupaverði á Íslandi. Ef til koma gengisbreytingar, opinberir skattar eða aðrar verðhækkanir sem við höfum ekki stjórn á, áskilja ÍFLM/IMG sér rétt til að breyta verðum sem þegar hefur verið vitnað í eða birt eru í gjaldskrám okkar, án fyrirvara.
Breytingar verða ekki gerðar á verðum innan 8 vikna fyrir brottfarardag.
Verð eru staðfest við útgáfu greiðslukvittunar og verður ekki breytt nema til komu verðhækkanir vegna opinberra laga eða gengisbreytinga. Upphæðir að verðmæti allt að 5% af heildarvirði ferðar falla á ÍFLM/IMG. Upphæðir umfram 5% af heildarvirði ferðar greiðast af viðskiptavini. Viðskiptavini er heimilt að afbóka staðfesta ferð sér að kostnaðarlausu ef aukalegur kostnaður fer yfir 10% af heildarvirði ferðar.
Annað
Allar kvartanir verða að berast ÍFLM/IMG innan 5 daga frá brottfarardegi.
ÍFLM/IMG áskilja sér rétt til að breyta ferðatilhögun vegna veðurs eða akstursaðstæðna. Öllum ferðum getur verið breytt eða aflýst fyrirvaralaust á meðan ferð stendur til að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsmanna ÍFLM/IMG. Engin ábyrgð er tekin á tapi, kostnaði vegna tafa, breytinga á flugi eða annarri þjónustu eða vegna verkfalla, slysa, skemmda, gáleysis, veðurs, stríðs, breyttum áætlunum eða öðrum þess háttar tilvikum. ÍFLM/IMG bera ekki ábyrgð á slysum eða dauðsföllum sem hægt er að rekja til gáleysis þátttakenda, aðgerðum þriðja aðila eða utanaðkomandi aðstæðna eins og veðurfars, náttúruhamfara, stríðs eða annarra álíka tilvika.
Lengri ferðir
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn leitast við að tryggja það að verð sem birtast á vefsvæði þeirra byggist á réttum útreikningum og séu endanleg verð ferða. Öll verð eru í íslenskum krónum. Verð ferða eru staðfest við greiðslu.
Afbókanir
Allar afbókunarbeiðnir þarf að senda með tölvupósti. Í samræmi við viðskiptahætti innan íslenskrar ferðaþjónustu er ferðaþjóni skylt að innheimta eftirfarandi afbókunargjöld frá farþegum:
Afbókunargjöld
ÍFLM/IMG áskilja sér rétt til að innheimta eftirfarandi afbókunargjöld vegna kostnaðar:
- 85% af virði ferðar fæst endurgreitt ef afbókun berst 60 dögum, eða fyrr, fyrir brottför ferðar.
- 50% af virði ferðar fæst endurgreitt ef afbókun berst 30 - 59 dögum fyrir brottfarardag.
- 25% af virði ferðar fæst endurgreitt ef afbókun berst 16 - 29 dögum fyrir brottfarardag.
- 0% af virði ferðar fæst endurgreitt ef efbókun berst innan 15 daga fyrir brottfarardag.
Sérsniðnar ferðir
Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 50% af heildarvirði ferðarinnar. Ferðina þarf að greiða að fullu minnst 9 vikum fyrir brottför.
Breytinga- og bókunargjald
Ef óskað er eftur breytingum á tilbúnum pakkaferðum, eins og að bæta gistinóttum, breyta um gististaði eða breyta dagsetningum, er mögulegt að breytingargjald bætist við heildarkostnað ferðar. Vinsamlegast athugið að hægt er að bæta við gistinóttum í Reykjavík fyrir og/eða eftir ferð að án breytingagjalds.
- Breytingar með skömmum fyrirvara: Ef óskað er eftir breytingu á staðfestri þjónustu innan tveggja vikna fyrir brottfarardag er mögulegt að breytingargjald bætist við heildarkostnað ferðar.
- Bókanir með skömmum fyrirvara: Ef óskað er eftir bókunum innan tveggja vikna fyrir brottfarardag er mögulegt að bókunargjald bætist við heildarkostnað ferðar. Þetta á við um bókanir í self-drive pakka og gistingu á landsbyggðinni. Bókunargjald er ekki staðfesting á þjónustu og leggst því aðeins á staðfestar bókanir.
Tryggingar
Við ráðleggjum öllum okkar viðskiptavinum að vera með ferðatryggingu.
Gildandi verð
Öll verð sem vitnað er í eða birt eru í gjaldskrám okkar, byggja á núverandi innkaupaverði á Íslandi. Ef til koma gengisbreytingar, opinberir skattar eða aðrar verðhækkanir sem við höfum ekki stjórn á, áskilja ÍFLM/IMG sér rétt til að breyta verðum sem þegar hefur verið vitnað í eða birt eru í gjaldskrám okkar, án fyrirvara.
Breytingar verða ekki gerðar á verðum innan 8 vikna fyrir brottfarardag.
Verð eru staðfest við útgáfu greiðslukvittunar og verður ekki breytt nema til komu verðhækkanir vegna opinberra laga eða gengisbreytinga. Upphæðir að verðmæti allt að 5% af heildarvirði ferðar falla á ÍFLM/IMG. Upphæðir umfram 5% af heildarvirði ferðar greiðast af viðskiptavini. Viðskiptavini er heimilt að afbóka staðfesta ferð sér að kostnaðarlausu ef aukalegur kostnaður fer yfir 10% af heildarvirði ferðar.
Annað
Allar kvartanir verða að berast ÍFLM/IMG innan 5 daga frá brottfarardegi.
ÍFLM/IMG áskilja sér rétt til að breyta ferðatilhögun vegna veðurs eða akstursaðstæðna. Öllum ferðum getur verið breytt eða aflýst fyrirvaralaust á meðan ferð stendur til að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsmanna ÍFLM/IMG. Engin ábyrgð er tekin á tapi, kostnaði vegna tafa, breytinga á flugi eða annarri þjónustu eða vegna verkfalla, slysa, skemmda, gáleysis, veðurs, stríðs, breyttum áætlunum eða öðrum þess háttar tilvikum. ÍFLM/IMG bera ekki ábyrgð á slysum eða dauðsföllum sem hægt er að rekja til gáleysis þátttakenda, aðgerðum þriðja aðila eða utanaðkomandi aðstæðna eins og veðurfars, náttúruhamfara, stríðs eða annarra álíka tilvika.
Tilboð og afslættir
Gildistími og notkun
Tilboð, afslættir og kynningar frá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum gilda aðeins fyrir tilgreind ferðatímabil og samkvæmt þeim skilyrðum sem koma fram við bókun. Ekki er hægt að nýta tilboð eftir á fyrir eldri bókanir eða sameina þau öðrum tilboðum nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Tilgreint ferðatímabil
Tilboð gilda aðeins fyrir ferðir á tilgreindu tímabili. Ef ferð er færð á dagsetningu utan tilgreinds tímabils þarf viðskiptavinurinn að greiða mismuninn á upphaflegu verði og nýju fargjaldi. Breytingar á dagsetningu eru háðar framboði og hefðbundnum reglum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna um breytingar.
Takmarkanir og fyrirvarar
Ákveðin tilboð geta verið háð takmörkunum, þar á meðal en ekki takmarkað við, dagsetningar þar sem tilboð gilda ekki, takmarkað framboð eða undantekningar á tilteknum ferðum eða þjónustu. Það er á ábyrgð viðskiptavinarins að kynna sér sérstaka skilmála hvers tilboðs.
Breytingar og afbókanir
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn áskilja sér rétt til að breyta eða afturkalla hvaða tilboð sem er hvenær sem er, án fyrirvara, sérstaklega ef um villur eða ófyrirséðar aðstæður er að ræða sem hafa áhrif á framboð eða tímasetningu þjónustu.