Frá Litlu Kaffistofunni

Fjórhjólaferð um Hengilssvæðið - 1 klst.

Ný ferð

Upplifðu hreina orku Íslands í þessari snörpu og fræðandi fjórhjólaferð um jarðhitasvæðið við Hengil.

Ferðarkóði: LK401

Verð frá:
147 USD
132 USD
Bóka
tveir ferðalangar njóta útsýnisins við hlið fjórhjóls

Farðu á fjórhjóli um ægifagurt Hengilssvæðið

Ævintýrið hefst á Litlu Kaffistofunni, aðeins örfáum mínútum frá Reykjavík. Eftir stutta öryggiskynningu, þegar gestir eru komnir í hlýjan galla og hjálm er lagt af stað í spennandi ferð um eitt stórbrotnasta háhitasvæði landsins.

Leiðin liggur í átt að Hellisheiði og inn í háhitasvæði Hengilsins, þar sem náttúruöflin, saga og sjálfbærniverkefni eiga öll heima. Farið er yfir magnað landslag í Svínahrauni, einnig þekkt sem Kristnitökuhraun, og fram hjá nokkrum framúrskarandi jarðhita- og loftslagsverkefnum á leiðinni.

Hengillinn sjálfur rís 803 metra yfir sjávarmáli og stendur á Mið-Atlantshafshryggnum þar sem Norður-Ameríku- og Evrasíuflekarnir rekur hægt í sundur og valda því að þetta er eitt heitasta svæði Íslands. Gufubólstrar og bullandi jarðhiti koma í ljós þegar líður á ferðina og á heiðskírum dögum er víðáttumikið útsýni yfir fjallgarða, hraunbreiður og Reykjavíkurborg.

Stoppað er við virka borholu þar sem gestir upplifa kraft gufunnar sem spýtist upp úr iðrum jarðar en það er einstök upplifun sem gefur innsýn inn í lifandi landslagið. Þá er ekið fram hjá Hellisheiðarvirkjun, einni stærstu jarðhitavirkjun í heimi en hún sér Reykjavík og nágrenni fyrir bæði rafmagni og heitu vatni.

Að lokum er stoppað við Skíðaskálann í Hveradölum, þennan sögulega fjallaskála frá 1934 sem er staðsettur í dalverpi, umkringdum gufubólstrum af jarðhitanum. Þar er hægt að gæða sér á alvöru hverabrauði sem er hægt og rólega bakað í heitri jörðinni en þjóðlegra bragð er vandfundið. Þá má einnig taka út ný leirböð á hverasvæðinu.

Vantar þig far?

Ef þú ert ekki á eða vilt spara þér aksturinn getur þú einnig bókað Fjórhjólaferð um jarðhitasvæðið við Hengil með rútu en þá er akstur til og frá Litlu Kaffistofunni úr borginni innifalinn.

Yfirlit ferðar

8
Lágmarks aldur
8 ár
Icon
Lengd ferðar
1 klukkustund
Icon
Erfiðleikastig
Létt

Tour Highlights

Magnað útsýni
Hellisheiðarvirkjun
Jarðhitasvæði
Spennandi fjórhjólaferð og stórbrotið útsýni

Hvað er að frétta?

Vertu áskrifandi að fréttabréfinu okkar og fáðu fréttir af tilboðum, nýjum ferðum og góðar ábendingar um útivist og ævintýri beint í innhólfið.

Aðrar ferðir sem gætu höfðað til þín