
Fjórhjólaferð um Hengil & Jósepsdal - 2 klst.
Upplifðu einstakt eldfjallalandslagið rétt utan við Reykjavík í þessari tveggja tíma fjórhjólaferð um Hengilssvæðið og Jósepsdal. Steinsnar frá borginni er ekið um víðáttumikil hraun, dali og fjalllendi þar sem náttúran fær að njóta sín.
Ferðarkóði: LK402
183 USD







Stórkostlegt fjórhjólaævintýri á Íslandi – Hraunsvæði og eldfjöll nálægt Reykjavík
Skelltu þér út fyrir borgarmörkin og beint út í íslenska náttúru í þessari tveggja tíma fjórhjólaferð frá Litlu Kaffistofunni, aðeins 15–25 mínútur frá Reykjavík. Ferðin liggur inn á Hengilssvæðið og um hinn sögufræga Jósepsdal, þar sem svart hraun, fjallshryggir og opið landslagið skapa kjöraðstæður fyrir akstur á skemmtilegu fjórhjóli.
Keyrt er um Svínahraun að Hellisheiðarvirkjun, upp á Hengilssvæðið, inn í Hveradali, inn eftir Jósepsdal og í nágrenni við Vífilsfell, þar sem víðáttumikið útsýni yfir Hengilinn og nærliggjandi hálendi blasa við. Ferðin tekur um tvær klukkustundir sem gefur fólki meiri tíma til að njóta svæðisins, landslagsins og akstursins.
Þessi ferð sameinar skemmtun, náttúru og innsýn í landslag sem mótast hefur af eldvirkni í þúsundir ára. Hún hentar bæði þeim sem eru að prófa fjórhjól í fyrsta skipti og þeim sem vilja lengri og fjölbreyttari upplifun í nágrenni borgarinnar.
Yfirlit ferðar
- Lágmarks aldur
- 8 ár
- Lengd ferðar
- 2 klukkustundir
- Erfiðleikastig
- Létt
Tour Highlights




Vertu áskrifandi að fréttabréfinu
Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu tilboð, nýjustu fréttir og mögulegar forskráningar í ferðir beint í innhólfið.
Aðrar ferðir sem gætu höfðað til þín


Styttri Fjórhjólaferð um Sólheimasand að Flugvélaflakinu

Fjórhjólaferð á Sólheimasandi að Flugvélaflakinu
