Sögufræg bygging Litlu Kaffistofunnar við þjóðveginn og fjögur fjórhjól fyrir framan

Frá Litlu Kaffistofunni

Hópferðir og fyrirtækjapakkar frá Litlu Kaffistofunni

Ertu að leita að eftirminnilegri upplifun fyrir hópinn?

Frá Litlu Kaffistofunni gerum við út skemmtilegar fjórhjólaferðir um ævintýralegt umhverfi Hengilsins, Hellisheiðar og Jósepsdals. Staðsetningin er frábær því það tekur aðeins 12 mínútur að keyra frá Norðlingaholti að Litlu Kaffistofunni og þaðan er stutt að fara í aðra afþreyingu sem við bjóðum í sérstökum skemmtipökkum sem viðbót við fjórhjólaferðirnar okkar. Hvernig hljómar spennandi flug í Mega Zipline við Hveragerði, ævintýraleg hellaferð í Raufarhólshelli og að láta svo líða úr sér í Reykjaböðum, glæsilegu nýju baðlóni við Hveragerði?

Hægt er að bæta við akstri, veitingavögnum og veigum eins og við á og því henta ferðirnar stórum sem smáum hópum, hvort sem um er að ræða fjölskylduna, saumaklúbbinn, starfsmannagleðina eða bara eldhressa vini í leit að einhverju nýju og skemmtilegu að gera.

Afþreyingin er fyrsta flokks, vegalengdirnar stuttar og stemningin ómótstæðileg.

Raða eftir
Ný ferð

Upplifðu hreina orku Íslands í þessari hressandi fjórhjólaferð um háhitasvæðið við Hengil. Ferðin hefst við Litlu Kaffistofuna en þaðan er ekið um stórbrotna náttúruna í Svínahrauni, stoppað við magnaða sjónása, fræðst um orkunýtingu, nýsköpun og bragðað á alvöru hverabrauði.

1,5 klukkustundir
USD
143
115
Ný ferð

Upplifðu einstakt eldfjallalandslagið rétt utan við Reykjavík í þessari tveggja og hálfs tíma fjórhjólaferð um Hengilssvæðið og Jósepsdal. Steinsnar frá borginni er ekið um víðáttumikil hraun, dali og fjalllendi þar sem náttúran fær að njóta sín.

2,5 klukkustundir
USD
199
159