Frá Litlu Kaffistofunni

Partípakkinn - Einkapartí og fjórhjólaferð frá Litlu Kaffistofunni

Kynningartilboð

Fræðandi fjórhjólaferð fyrir hressa hópa um Hengilssvæðið með einkapartíi í Litlu Kaffistofunni á eftir. Fullkomið fyrir gæsun, steggjun, árshátíð, starfsmannaskemmtun eða stórafmæli.

Ferðarkóði: Pakki6

Verð frá:
905 USD
Hafa samband
Hópur fólks situr í stiga, heldur á diskum og brosir til myndavélar.

Partípakkinn er frábær leið til að hrista hópinn saman og gera sér virkilega glaðan dag í góðra vina hópi. Litla Kaffistofan er í þægilegri akstursfjarlægð frá Reykjavík, aðeins um 25 mínútur frá miðborginni og auðvelt er að bæta akstri (rúta og bílstjóri) við pakkann.

Partíið hefst á fjórhjólaferð frá Litlu Kaffistofunni þar sem blandast saman fjörugur akstur, stórbrotið útsýni yfir Hengilssvæðið, fræðsla um háhitasvæðið og þjóðlegt hverabrauðssmakk. Ferðinni lýkur aftur á Litlu Kaffistofunni þar sem slegið er upp einkapartíi á einstökum stað við rætur Svínahrauns. Þið getið komið með grillkjötið með ykkur, því grill er á staðnum, eða pantað veitingar frá samstarfsaðilum okkar.

Partípakkinn er fullkomin leið til að halda upp á áfangann, hvort sem það er gæsun eða steggjun, árshátíð, hópefli, starfsmannaskemmtun eða afmæli, á einstökum stað rétt utan við höfuðborgarsvæðið.

Yfirlit ferðar

8
Lágmarks aldur
8 ár
Icon
Lengd ferðar
5 klukkustundir
Icon
Erfiðleikastig
Létt

Hafa samband

Tilbúin í ævintýri? Sendu inn bókunarbeiðni og tryggðu hópnum þínum eftirminnilega fjórhjólaferð í stórbrotnu landslagi Hengilsins. Við sjáum um rest!

Upplýsingar um aðalfarþega

Ferðaupplýsingar

Innifalið

  • Einkafjórhjólaferð
  • 2 drykkir
  • Afnot af Litlu Kaffistofunni
  • Hægt er að bæta við rútu og bílstjóra

Hvað er að frétta?

Skráðu þig á póstlistann og fáðu sérstök tilboð, kynningarefni og nýjustu frétti beint í innhólfið.