
Jöklaganga á Sólheimajökli - 4 klst.

Trip Advisor Best of the Best Adward 2025

Trip Advisor Best of the Best Adward 2025
Frábær jöklaganga fyrir alla fjölskylduna. Auðveld, örugg og þægileg leið til að kynnast skriðjöklum landsins með lítilli fyrirhöfn. Sólheimajökull er einstaklega aðgengilegur og er bara í 2,5 klukkustundar fjarlægð frá Reykjavík.
Ferðarkóði: AG101








Jöklaganga með leiðsögn á Sólheimajökli
Komdu með okkur í eftirminnilega jöklagöngu á Sólheimajökli, undir leiðsögn okkar reyndu og hæfu jöklaleiðsögumanna. Þeir hafa allir hlotið þjálfun hjá AIMG (Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna) og leiða þig örugglega um jökulinn. Sjálf gangan á ísnum hentar flestum sem eru í sæmilegu formi og krefst engrar jöklareynslu — en leiðin að og frá jöklinum er hluti af áskoruninni: samtals 3,5–4 klukkustunda ganga með um 350 m hækkun, þar á meðal nokkur hækkun á bakaleiðinni.
Leiðsögumennirnir okkar, sem einnig eru margir virkir þátttakendur í björgunarsveitum á svæðinu brenna fyrir náttúruvernd, munu fara með þig á afskekkta og sérstaka staði á jöklinum sem aðeins fáir fá að upplifa. Þú færð allan nauðsynlegan öryggisbúnað til að tryggja öryggi þitt á jöklinum og draga um leið úr áhrifum okkar á umhverfið.
Litlir hópar tryggja nána og persónulega upplifun. Þessi ganga á Sólheimajökli er ævintýri sem allir sem eru í góðu formi ættu að upplifa — með ótal myndastoppum í stórbrotnu landslagi á leiðinni og á jöklinum sjálfum. Upplifðu íslenskan jökul eins og aldrei fyrr með okkur.
Yfirlit ferðar
- Upphafsstaður
- Bækistöðvar Fjallaleiðsögumanna við Sólheimajökul
- Stærð hópa
- Allt að 15 með hverjum leiðsögumanni
- Tungumál
- Enska
- Á ísnum
- 2 - 2,5 klst.
- Á göngu
- 3,5 - 4 klst.
- Lágmarks aldur
- 10 ár
- Lengd ferðar
- 4 klukkustundir
- Erfiðleikastig
- Easy to moderate
Umsagnir viðskiptavina
We only have the best to say regarding our experience with Icelandic Mountain Guides. We were doing some filming in Iceland and were accompanied on Sólheimajökull glacier by Kari who was the perfect guide for us. Sia in the office was also a dream to deal with and we were so pleased with the whole experience. Highly recommend!
Tour Highlights





Innifalið
- Reyndur og menntaður leiðsögumaður
- Jöklabúnaður
- Öryggisbúnaður
- Aðgangur að sérstökum svæðum
- Minni hópar
Ekki innifalið
- Regnfatnaður
- Gönguskór
- Hlýr fatnaður
Valkvæðar viðbætur
- Regnfatnaður (jakkar og buxur)
- Gönguskór
Ferðakort og ferðaáætlun
Smelltu á kort fyrir nákvæma ferðaáætlunJöklaganga á Sólheimajökli - 4 klst.
Dagsferð
Þú finnur okkur á Sólheimajökli en aðstaðan okkar er vel merkt og stendur við bílastæðið. Áður en við höldum af stað þá þurfum við að undirbúa okkur. Við mátum brodda, fáum ísöxi, hjálm og klifurbelti. Þú færð stuttar öryggisleiðbeiningar áður en haldið er af stað á jökulinn.
Leiðsögumaðurinn mun leiða þig í gegnum allt ferlið, allt frá stillingu á broddum til útskýringa á náttúrufyrirbærum. Að göngu lokinni verður haldið aftur á upphafsstað í bílastæðinu.
Leiðarvísir
Aksturstími
Frá Reykjavík: 2,5 klst.
Frá Vík: 45 mín.
GPS hnit fyrir Sólheimajökul
N 63.532833
W 19.369675
Frá Reykjavík
6 km eftir Skóga beygirðu til vinstri (rétt eftir brú) inn á veg 221 og fylgir honum í um 5 km að bílastæðinu við Sólheimajökul.
Frá Vík
3 km eftir að þú keyrir fram hjá vegi 222 beygirðu til hægri (rétt fyrir brú) inn á veg 221 og fylgir honum í um 5 km að bílastæðinu við Sólheimajökul.
Hvað er að frétta?
Vertu áskrifandi að fréttabréfinu okkar og fáðu fréttir af tilboðum, nýjum ferðum og góðar ábendingar um útivist og ævintýri beint í innhólfið.
Hagnýtar upplýsingar
How long in advance do I need to book?
We always recommend to book as soon as you are ready especially if you have a strict travel schedule or a large group. It is easy to change or cancel 24 hours before departure by emailing us (info@mountainguides.is). Tours can also be purchased the day of as long as there are spaces available.
What is the address of the meeting place?
There are no official addresses on our meeting points but you can see directions and GPS points if you click the map above.
Why do I need to arrive 20 minutes before departure time?
Before we head to the glacier for the tour we need to get everyone fitted with the equipment, crampons and harnesses. The crampons need to be adjusted to each persons shoe size so it is important that people arrive 20 minutes before so everyone is ready at the departure time.
Get ég farið í jöklagöngu ef ég er ólétt?
Öryggi viðskiptavina okkar er í fyrirrúmi, og leiðsögumenn okkar eru sérfræðingar í leiðsögn um jökla. Þar sem jöklar og veðuraðstæður á Íslandi geta verið óstöðugar, er þátttaka – sérstaklega þegar um meðgöngu er að ræða – alltaf metin af leiðsögumanninum, sem tekur endanlega ákvörðun út frá rauntímaaðstæðum til að tryggja öryggi og þægindi allra.
Aðrar ferðir sem gætu höfðað til þín

