
Kajaksigling við jökulsporð Sólheimajökuls

Trip Advisor Best of the Best Adward 2025
Check out our reviews
Trip Advisor Best of the Best Adward 2025
Check out our reviewsSigldu um stórfenglegt lónið við rætur Sólheimajökuls. Njóttu fallegs umhverfisins í kringum þig á meðan reyndur leiðsögumaður leiðir þig um lón þessa fjölsótta skriðjökuls.
Ferðarkóði: AG105










Exciting Kayaking Tour On Sólheimajökull Glacier Lagoon
Reyndir kajakleiðsögumenn Íslenskra Fjallaleiðsögumanna taka á móti þér í höfuðstöðvum okkar við Sólheimajökul (Sólheimajökull Base Camp) þar sem farið er yfir grunnatriðin í kajakróðri. Þurrbúningur er innifalinn í ferðinni og þegar allir eru tilbúnir er haldið niður að lóninu. Á lóninu er siglt milli ísjaka og jökullinn skoðaður frá sjónarhornum sem ekki eru aðgengileg frá landi. Í ferðinni er notast við svokallaða sit-on-top kajaka, sem auðvelt er að stýra og því er ekki þörf á neinni fyrri reynslu í kajakróðri. Ferðin er því tilvalin fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna og góð afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Athugið: Notaðir eru bæði eins- og tveggja manna kajakar. Leiðsögumaður ferðarinnar velur og raðar í kajaka eins og best hentar hópnum.
Hægt er að bóka ferðina með akstri frá Reykjavík.
Yfirlit ferðar
- Upphafsstaður
- Bækistöðvar Fjallaleiðsögumanna við Sólheimajökul
- Stærð hópa
- 2 - 8 á hvern leiðsögumann
- Lengd ferðar
- 1 - 1,5 klst.
- Tungumál
- Enska
- Lágmarks aldur
- 14 ár
- Lengd ferðar
- 2.5 klukkustundir
- Erfiðleikastig
- Wind strength might affect the tour difficulty in the lagoon
Umsagnir viðskiptavina
Kayaking around Glaciers with a fantastic guide - Tamas!
This was the first formal activity we did upon our arrival in Iceland and it was the best start to the trip! Tamas was an entertaining, jovial, well-educated guide that provided us with a lot of really interesting information while keeping us laughing. As a former teacher, he is well-qualified to share information about the landscape in an easily digestible format.
Kayaking through this lake observing glaciers up close was an incredible way to start the day. I'd fully recommend this activity to anyone that wants a relaxing kayaking trip through the ice. I had some limitations at the time (due to pregnancy) and Tamas was incredibly careful to ensure that I didn't feel too much strain and had the opportunity for plenty of breaks.
Tour Highlights




Innifalið
- Reyndir leiðsögumenn
- Kajak (fyrir einn eða tvo)
- Þurrbúningur
- Te, kaffi, vatn og aðgangur að salernisaðstöðu við Sólheimajökul
Ekki innifalið
- Hlýr fatnaður
- Þurrir sokkar eftir ferð (sjá lista yfir búnað)
Ferðakort og ferðaáætlun
Smelltu á kort fyrir nákvæma ferðaáætlunKajaksigling við jökulsporð Sólheimajökuls
Dagsferð
Áður en lagt er af stað að lóninu hittir þú leiðsögumanninn í bækistöð okkar við bílastæðið.
Þar færðu stuttan öryggisfyrirlestur og við mátum þurrgalla.
Leiðsögumaðurinn finnur út hvernig best er að skipta kajökunum á milli gesta, hvort sem það er fyrir eina eða tvær manneskjur.
Í hverja ferð getur leiðsögumaður tekið með sér ákveðinn hámarksfjölda báta og því þurfa gestir stundum að para sig saman.
Í lok skemmtilegrar og auðveldrar kajakferðar munt þú snúa aftur á upphafsstað.
Directions
Aksturstími
Frá Reykjavík: 2,5 klst.
Frá Vík: 45 mín.
GPS-punktur fyrir Sólheimajökul
N 63.532833
W 19.369675
Aðkoma frá Reykjavík
6 km eftir Skóga beygir þú til vinstri (rétt eftir brúna) inn á veg 221 og fylgir honum í um 5 km að bílastæði Sólheimajökuls.
Aðkoma frá Vík
3 km eftir að þú ekur framhjá vegi 222 beygir þú til hægri (rétt fyrir brúna) inn á veg 221 og fylgir honum í um 5 km að bílastæði Sólheimajökuls.
Hvað er að frétta?
Vertu áskrifandi að fréttabréfinu okkar og fáðu fréttir af tilboðum, nýjum ferðum og góðar ábendingar um útivist og ævintýri beint í innhólfið.
Hagnýtar upplýsingar
Aðrar ferðir sem gætu höfðað til þín
