Frá Litlu Kaffistofunni

Fjórhjólafjör - Hópaferð frá Litlu Kaffistofunni

Kynningartilboð

Hressandi og öðruvísi afþreying fyrir hópa rétt utan við borgina. Njótið dagsins í fræðandi einkaferð á fjórhjóli um háhitasvæðið Hengil og skálið svo í góðra vina hópi á Litlu Kaffistofunni. Tilvalið fyrir hópefli, gæsun og steggjun, sauma- og bókaklúbbinn eða starfsmannahópinn.

Ferðarkóði: Pakki1

Verð frá:
113 USD
Hafa samband
Þrjár manneskjur að virða fyrir sér útsýnið á björtum degi

Fjórhjólafjör frá Litlu Kaffistofunni er fullkomin afþreying fyrir hópa sem vilja komast út í náttúruna og lyfta sér upp saman. Ferðin er fræðandi útsýnisferð á fjórhjóli um háhitasvæðið Hengil, þar sem gleði og spenna ráða ríkjum í fjölbreyttu landslagi Svínahrauns. Nýuppgerð bækistöðin okkar Litla Kaffistofan er í aðeins 25 mínútna akstursfjarlægð frá miðborg Reykjavíkur og 12 mínútum frá Norðlingaholti.

Á leiðinni er brunað um hraun og hæðir, stoppað við magnaða sjónása og fræðst um orkunýtingu og náttúru svæðisins. Að ferð lokinni snýr hópurinn aftur á Litlu Kaffistofuna, fær sér drykk og á góða stund saman.

Fjórhjólafjör hentar fullkomlega fyrir hópefli og fyrirtækjahópa, gæsun og steggjun, saumaklúbbinn, bókaklúbbinn eða eldhressa vini sem vilja gera sér glaðan dag rétt utan við höfuðborgina.

Yfirlit ferðar

Icon
Fjöldi
6-16
8
Lágmarks aldur
8 ár
Icon
Lengd ferðar
3 klukkustundir
Icon
Erfiðleikastig
Létt

Hafa samband

Tilbúin í ævintýri? Sendu inn bókunarbeiðni og tryggðu hópnum þínum eftirminnilega fjórhjólaferð í stórbrotnu landslagi Hengilsins. Við sjáum um rest!

Upplýsingar um aðalfarþega

Ferðaupplýsingar

Innifalið

  • Einkaferð með leiðsögn á fjórhjóli
  • 2 drykkir á Litlu Kaffistofunni
  • Hægt er að bæta við rútu og bílstjóra

Valkvæðar viðbætur

  • Akstur til og frá Litlu Kaffistofunni (rúta og bílstjóri)

Haltu mig upplýstum um Fjórhjólafjör - Hópaferð frá Litlu Kaffistofunni

Ævintýri úti í náttúru Íslands eru okkar sérgrein. Gerðu þér greiða og gerðu áskrift að okkar ókeypis mánaðarlega fréttabréfi til að fá upplýsingar um hvenær best er að fara, hvað er gaman að gera og hvar þú finnur bestu ævintýrin á Íslandi.

Aðrar ferðir sem gætu höfðað til þín