
Hvannadalshnúkur
Þessi ferð hefur verið okkar vinsælasta meðal Íslendinga frá því að Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hófu að leiðsegja á Hnúkinn árið 1994.


Þessi ferð hefur verið okkar vinsælasta meðal Íslendinga frá því að Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hófu að leiðsegja á Hnúkinn árið 1994.

Leiðin býður upp á stórbrotið útsýni yfir Öræfajökul sem og skriðjöklana Svínafellsjökul og Skaftafellsjökul. Stórkostleg fjallganga um heim jökla og hárra tinda.

Komdu með okkur í dagsferð á Fimmvörðuháls. Gangan byrjar við Skógafoss; síðan er gengið framhjá endalausri röð af fossum í dramatísku landslagi milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Ferðin endar í Básum á Goðalandi.

Komdu með í alvöru fjallgöngu á Eyjafjallajökul með óviðjafnanlegu útsýni til allra átta. Að standa á toppnum er virkilega erfiðisins virði. Gangan er krefjandi en er velfær öllu útivistarfólki.

Snæfellsjökull er líklega næstfrægasta fjall landsins á eftir Eyjafjallajökli. Staðsetning þess, þar sem það rís 1446 m með sjó á þrjár hliðar gerir það einstakt. Dagsferð á Snæfellsjökul svíkur engan, frábært útsýni, hæfilega krefjandi ganga með jöklabúnaði og að standa á toppnum á þessu sérstæða eldfjalli og njóta útsýnisins er algjörlega þess virði.

Grænihryggur er einn af þessum földu fjársjóðum Íslands. Fagurgræni liturinn á hryggnum lítur út eins og eitthvað úr öðrum heimi; að bera þetta náttúruundur augum gerir gönguna vel þess virði.