From Skaftafell

Hrútsfjallstindar

Hrútsfjallstindar er nafnið á 4 glæsilegum fjallstindum sem standa norðan við Svínafellsjökul og rís sá hæsti þeirra 1875m yfir sjávarmál.

Ferðarkóði: SKF27

Verð frá:
473 USD
Bóka

A Challenging Hike With Magnificent Views

Fjallganga á Hrútsfjallstinda er í sambærilegum erfiðleikaflokki og ganga á Hvannadalshnúk og er góður kostur fyrir þá sem vilja komast í krefjandi fjallgöngu sem krefst þó ekki tæknilegrar færni. Leiðin býður upp á stórbrotið útsýni yfir Öræfajökul sem og skriðjöklana Svínafellsjökul og Skaftafellsjökul. Þetta er krefjandi og stórkostleg fjallganga um heim jökla og hárra tinda.

Undirbúningsfundur er haldin kl 16:00 daginn fyrir brottför í bækistöð Íslenskra Fjallaleiðsögumanna í Skaftafelli.

Fatnaður:

Ganga á Hrútsfjallstinda tekur að jafnaði 12 til 15 klukkutíma. Búast má við hitastigi á bilinu –10°C og upp í 20°C á hvaða árstíma sem er. Besta leiðin til að búa sig vel undir þennan mikla hitamun er að klæða sig í lögum. Þannig er hægt að fara úr í miklum hita eða auka við fatnað eftir því sem ofar dregur og kólnar.

Það er mjög mikilvægt að klæðast fatnaði næst húðinni sem ekki dregur í sig raka. Ull og ýmis gerviefni reynast mjög vel en bómull er afar slæm hugmynd á fjöllum. Útivistarverslanir bjóða upp á mikið framboð af góðum innanundirfatnaði og geta gefið góð ráð um val á honum. Þunnir langermabolir gefa besta vörn á sólríkum dögum!

Matur og drykkur:

Á meðan á fjallgöngunni stendur er stoppað nokkrum sinnum í lengri og skemmri tíma til að nærast og drekka. Mjög gott er að hafa nesti sem samanstendur af sælgæti, t.d. súkkulaði, sem borða má í stuttum pásum og samlokum sem gefa orku til lengri tíma og hægt er að borða í lengri hléum.

Það er sjaldgæft að göngumenn nái ekki toppnum vegna þreytu. Þegar slíkt kemur fyrir er það venjulega vegna vöðvakrampa. Vöðvakrampar verða til vegna samblands áreynslu, vökva- og steinefnaskorts. Besta leiðin til að koma í veg fyrir krampa er að drekka mikið af vökva.

Æfingar:

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem leggja í göngu á Hvannadalshnjúk eða Hrútfjallstinda með ÍFLM ná toppnum. Þegar það gerist ekki er það oftast vegna veðurs. Engin ætti þó að vanmeta þessar tindagöngur. Gangan er löng og dagurinn líkamlega erfiður og andlega krefjandi. Jafnvel fyrir fólk í mjög góðu formi!

Allir ættu því að æfa sig áður en lagt er á brattann. Esjan, Móskarðshnúkar, Vífilfell, Skarðsheiði og Akrafjall eru nokkur dæmi um fjöll sem eru aðgengileg og skemmtileg til að byggja upp þol.

Yfirlit ferðar

Icon
Upphafsstaður
Bækistöðvar Fjallaleiðsögumanna í Skaftafelli
Icon
Stærð hópa
2 til 6 á leiðsögumann
Icon
Tungumál
Enska
Icon
Á göngu
12 - 15 klst.
18
Lágmarks aldur
18 ár
Icon
Lengd ferðar
15 klukkustundir
Icon
Erfiðleikastig
Mjög erfið

Umsagnir viðskiptavina

Quote

“...Great views all of the way up. It is an eight hour ascent in good weather so not your average day trip. But if you are trained and moderately experienced well worth it…”

MOF1, USA-2016-06-03

Tour Highlights

Stórkostlegt útsýni
Krefjandi en ekki tæknilegt
Útsýni á Hvannadalshnúk
Í heimi jökla og hárra tinda

Innifalið

  • Experienced and qualified guide
  • Glacier gear
  • Safety equipment

Ekki innifalið

  • Rain gear
  • Hiking boots
  • Warm clothing
  • Lunch

Valkvæðar viðbætur

  • Rain gear (jacket or pants)
  • Hiking boots

Ferðakort og ferðaáætlun

Smelltu á kort fyrir nákvæma ferðaáætlun
Map & Itinerary

Hrútsfjallstindar

Undirbúningsfundur

Daginn áður

Undirbúningsfundur fer fram á bækistöð okkar í Skaftafelli kl. 16:00 daginn fyrir brottför. Það er mikilvægt að þú sért þar á þeim tíma. Á fundinum færðu upplýsingar og búnaðinn fyrir ferðina. Ef þú getur af einhverjum ástæðum ekki mætt þá áskilur fyrirtækið sér rétt til að hætta við ferðina án endurgreiðslu.

Athugið að brottfarartími getur breyst vegna aðstæðna og oft leggjum við fyrr af stað en klukkan 05:00.

A Challenging Hike With Magnificent Views

Day Tour

Athugið:

Við þurfum að lágmarki tvo þátttakendur til að staðfesta brottför. Við mælum með að viðskiptavinir okkar hafi smá svigrúm fyrir og eftir áætlaðan brottfarardag ef þörf væri á að hætta við eða breyta brottför vegna skorts á þátttöku eða veðurskilyrða.

Vinsamlegast hafðu samband við aðalsölu­skrifstofu okkar á netfangið info@mountainguides.is eða í síma +354 587 9999 ef þú hefur áhuga sérferð.

Skaftafell - Where to meet us

Directions

Aksturstími
Frá Reykjavík: 5 klst
Frá Vík: 2,5 klst
Frá Höfn: 1,5–2 klst

GPS-punktur fyrir Skaftafell
N 64.016217
W 16.966664

Söluskálinn okkar í Skaftafelli er staðsettur við tjaldsvæðið, rétt við þjónustumiðstöðina.

Vinsamlegast komið 20 mínútum fyrir brottför ferðarinnar

Keep informed about Hrútsfjallstindar Peaks

From time to time we send updates about new routes

Hagnýtar upplýsingar

How long in advance do I need to book

We always recommend to book as soon as you are ready especially if you have a strict travel schedule or a large group. It is easy to change or cancel 24 hours before departure by emailing us (info@mountainguides.is). Tours can also be purchased the day of as long as there are spaces available.

What is the address of the meeting place?

There are no official addresses on our meeting points but you can see directions and GPS points if you click the map above.

How difficult is the Hvannadalshnúkur summit hike?
I want to hike Hvannadalshnukur or Hrútsfjallstindar but the season is over/not started?

Unfortunately due to the nature of glaciers we cannot offer hikes to the top of these glaciers outside the hiking season. The season can vary according to weather conditions that year but is usually from April-August

Aðrar ferðir sem gætu höfðað til þín