Partípakkinn - Einkapartí og fjórhjólaferð frá Litlu Kaffistofunni
Fræðandi fjórhjólaferð fyrir hressa hópa um Hengilssvæðið með einkapartíi í Litlu Kaffistofunni á eftir. Fullkomið fyrir gæsun, steggjun, árshátíð, starfsmannaskemmtun eða stórafmæli.
Ferðarkóði: Pakki6












Partípakkinn er frábær leið til að hrista hópinn saman og gera sér virkilega glaðan dag í góðra vina hópi. Litla Kaffistofan er í þægilegri akstursfjarlægð frá Reykjavík, aðeins um 25 mínútur frá miðborginni og auðvelt er að bæta akstri (rúta og bílstjóri) við pakkann.
Partíið hefst á fjórhjólaferð frá Litlu Kaffistofunni þar sem blandast saman fjörugur akstur, stórbrotið útsýni yfir Hengilssvæðið, fræðsla um háhitasvæðið og þjóðlegt hverabrauðssmakk. Ferðinni lýkur aftur á Litlu Kaffistofunni þar sem slegið er upp einkapartíi á einstökum stað við rætur Svínahrauns. Þið getið komið með grillkjötið með ykkur, því grill er á staðnum, eða pantað veitingar frá samstarfsaðilum okkar.
Partípakkinn er fullkomin leið til að halda upp á áfangann, hvort sem það er gæsun eða steggjun, árshátíð, hópefli, starfsmannaskemmtun eða afmæli, á einstökum stað rétt utan við höfuðborgarsvæðið.
Yfirlit ferðar
- Lágmarks aldur
- 8 ár
- Lengd ferðar
- 5 klukkustundir
- Erfiðleikastig
- Létt
Hafa samband
Tilbúin í ævintýri? Sendu inn bókunarbeiðni og tryggðu hópnum þínum eftirminnilega fjórhjólaferð í stórbrotnu landslagi Hengilsins. Við sjáum um rest!
Innifalið
- Einkafjórhjólaferð
- 2 drykkir
- Afnot af Litlu Kaffistofunni
- Hægt er að bæta við rútu og bílstjóra
Hvað er að frétta?
Skráðu þig á póstlistann og fáðu sérstök tilboð, kynningarefni og nýjustu frétti beint í innhólfið.