Frá Litlu Kaffistofunni

Skemmtun og slökun – Fjórhjólaferð og Reykjaböð

Kynningartilboð

Hressandi og fræðandi fjórhjólaferð um Hengilssvæðið ásamt hlýrri heimsókn í Reykjaböð. Fullkomið fyrir vinahópa, hópefli og starfsmannaskemmtanir.

Ferðarkóði: Pakki5

Heitar laugar í Reykjaböðum með arineld

Skemmtun og slökun er ævintýralegur dagur þar sem fjörug upplifun og unaðsleg slökun fara saman. Á einum ógleymanlegum degi er farið í fjórhjólaferð um Hengilinn og háhitasvæðið í grennd við Litlu Kaffistofuna áður en haldið er í heitar laugar Reykjabaða við Hveragerði.

Fjórhjólaferðin hefst á Litlu Kaffistofunni, rétt utan við höfuðborgarsvæðið, og blandar saman fjörugum akstri, stórbrotnu útsýni yfir Hengilssvæðið og fræðslu um háhitasvæðið, með viðkomu á útsýnisstað þegar veður leyfir.

Deginum lýkur svo í heitu baðlóni Reykjabaða í gullfallegu umhverfi, enda fátt betra en að ljúka hressandi degi á alvöru lúxus í nýju og glæsilegu baðlóni. Reykjaböð er spennandi nýjung í flóru baðlóna landsins og þykja sérstaklega falleg og upplifunin einstök.

Litla Kaffistofan er í þægilegri akstursfjarlægð frá Reykjavík, aðeins um 25 mínútur frá miðborginni, og auðvelt er að bæta akstri frá Reykjavík við pakkann.

Skemmtun og slökun er fullkomin blanda ólíkra en stórkostlegra upplifana á einum ógleymanlegum degi, hvort sem um er að ræða vinahópinn, stórfjölskylduna, hópeflið eða starfsmannaskemmtunina.

Yfirlit ferðar

10
Lágmarks aldur
10 ár
Icon
Lengd ferðar
5 klukkustundir
Icon
Erfiðleikastig
Létt

Hafa samband

Tilbúin í skemmtun og slökun? Sendu inn bókunarbeiðni og fáðu verð í eftirminnilegan dag fyrir hópinn þinn!

Upplýsingar um aðalfarþega

Ferðaupplýsingar

Innifalið

  • Fjórhjólaferð
  • Aðgangur að Reykjaböðum
  • 2 drykkir
  • Akstur með bílstjóra
  • Hægt er að bæta við akstri frá Reykjavík

Hvað er að frétta?

Skráðu þig á póstlistann og fáðu sérstök tilboð, kynningarefni og nýjustu fréttir beint í innhólfið.