Fjölskylduævintýri í Sahara

Fjölskylduævintýri í Sahara

Verð frá
132000 kr.

Erfiðleikastig
Hófleg

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Brottfarir
Hver brottför er sniðin að þörfum farþega

Lengd ferðar
8 dagar

Athugið
Verð miðast við 4 farþega

Ævintýraleg ferð í eyðimörkina
Einstök ferð inn í Sahara fyrir þá sem vilja kynnast lífinu í eyðimörkinni. Ferðalangar fá innsýn í landslag, gróðurfar og dýralíf jafnt sem menningu og sögu þessa svæðis. Dagleiðir eru þægilegar og við njótum samfylgdar úlfalda sem löngum hafa verið þekktir sem skip eyðimerkurinnar enda hafa þessi harðgerðu dýr þjónustað íbúa hennar um aldaraðir. Að auki kynnumst við borginni Marrakech með sitt heillandi mannlíf og markaði. Gist er í tjöldum og hefðbundnum Bedúína tjaldbúðum á meðan á göngu stendur en á hóteli í Marrakech.

Dagskrá

Dagur 1 - Koma til Marrakech
Við komuna til Marrakech tekur staðarleiðsögumaður á móti hópnum og ekur á hótel í borginni. Hótelið er vel staðsett og stutt í veitingahús. Gist í tveggja manna herbergjum. Sundlaug á hótelinu

Dagur 2 - Akstur til Tamsahlte um Ouarzazate og Draa dalinn
Í dag hefst svo ævintýrið okkar og eftir morgunverð höldum við af stað að eyðimörkinni, sjálfri Sahara. Fyrsti hluti leiðar okkar liggur um Haouz sléttuna en svo hlykkjast vegurinn upp í fjöllin, alla leið upp í skarðið Tizi n´Tichka sem er í 2260 metra hæð og það hæsta í Marokkó. Handan fjallgarðsins lækkum við niður til borgarinnar Ouarzazate og hægt er að velta fyrir sér hvernig þetta skrýtna orð er borið fram en við snæðum hádegisverð í borginni. Í eftirmiðdaginn höldum við svo áfram ferð okkar og ökum í gegnum Draa dalinn þar sem einstæðar klettamyndanir sem trúlega ekkert okkar hefur áður séð kalla á stopp. Deginum lýkur svo við jaðar eyðimerkurinnar í Tamsahlte þar sem við gistum í tjaldbúðum. Þar gefst okkur færi á að kynnast úlföldunum og hirðum þeirra en þessi forvitnilegu dýr verða með okkur næstu daga. Gist í tveggja manna tjaldi. Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. 

Dagur 3 - Haldið inn í Sahara
Fyrsti dagurinn okkar á ferð með úlföldunum og framundan er eyðimörkin, sjálf Sahara eða í það minnsta örlítill hluti hennar þar sem við höldum í fótspor eyðimerkurfara fortíðarinnar. Úlfaldarnir eru ekki að flýta sér og hraði okkar miðast við það, við göngum með þeim og ef þreyta fer að gera vart við sig þá getum við skellt okkur á bak. Við höldum upp í Tizi n´Oujgal og yfir til Tizi n´Inejdane þaðan sem við njótum ómótstæðilegt útsýnis yfir eyðimörkina sem teygir sig eins langt og augað eygir. Landslaginu hér svipar til Hoggar fjallanna í mið Sahara, þar sem tenntir hryggir og stakar klettamyndanir standa upp úr sandinum. Á nýsteinöld bjó fólk á þessu svæði og má sjá minjar þess í hellaristum. Við setjum upp tjaldbúðir nálægt Ait Ouazzik. Gist í tveggja manna tjaldi. Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. 4 – 5 klst ganga 

Dagur 4 - Heimsókn í Kasbah og nótt í eyðimerkurvin
Eftir morgunverð höldum við til Ait Ouazzik virkisins, eða kasbah eins og það heitir á máli innfæddra og skoðum það áður en við leggjum af stað í göngu dagsins. Ólíkt því sem við gætum hafa haldið er ekki bara sandur í eyðimörkinni og leiðin okkar í dag liggur í gegnum gljúfur að brunninum IMI n´Ouarg þar sem við snæðum hádegisverðinn okkar. Við höldum svo áfram upp á við að sléttu sem gæti sem best verið á tunglinu miðað við landslagið, áður en við komum til þorpsins Amred, sem er sannkölluð vin í eyðimörkinni. Hérna setjum við upp tjaldbúðirnar okkar. Gist í tveggja manna tjaldi. Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. Ganga 4 – 5 klst 

Dagur 5- Sandöldurnar við Barghou og Foum Tizza
Við yfirgefum þessa yndislegu vin í eyðimörkinni og höldum áfram með úlföldunum okkar inn í sandhaf eyðimerkurinnar og komumst í dagslok í alvöru sandöldur, sem teygja sig eins langt og augað eygir austur eftir. Við setjum upp tjaldbúðir við Foum Tizza á frábærum stað. Gist í tveggja manna tjaldi. Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. Ganga 4 – 5 klst

Dagur 6 - Á slóðum steingervinga
þessi síðasti dagur eyðimerkurgöngunnar veitir enn og aftur innsýn í fjölbreytileika landslagsins. Leiðin liggur um Saredrar fjöllin þar sem steingervinga er að finna við nánast hvert fótmál. Í dagslok komum við að enn tilkomumeiri sandöldum þar sem við eyðum síðustu nóttinni í hefðbundnum bedúína tjöldum sem bjóða upp á rúm og sturtur svo við getum skolað af okkur eyðimerkurrykið. Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður. 4 – 5 klst ganga. 

Dagur 7 - Akstur til Marrakech
Eftir morgunveð í þessum heillandi bedúína tjaldbúðum höldum við til baka til nútímans og borgarinnar Marrakech. Við komu þangað förum við á hótel og eigum eftirmiðdaginn lausan til þess að skoða okkur um í gamla bænum eða á hinu stórkostlega Djemaa el Fna torgi eða einfaldlega slappa af við sundlaugarbakka hótelsins. Gist í tveggja manna herbergi. Morgunverður og hádegisverður. 

Dagur 8 - Haldið heim
Eftir morgunverð er kominn tími til að halda út á flugvöll og hefja leiðina heim. 

Bóka ferð

Ferðina er hægt að bóka fyrir einstaklinga og hópa, vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar.

Currency Settings

Choose your currency

Please note that our currency exchange rate is taken from the Icelandic Central Bank and might differ slightly from your bank's currency rate. Additionally, all charges are made in Icelandic Krona (ISK).

Select currency:

Iceland Rovers - Search

Looking for something special?

Skráðu þig á póstlista Íslenskra Fjallaleiðsögumanna!

* verður að vera útfyllt

Hafa samband

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.