Gjafabréf í ferðir
Verð frá
9490 kr.
Lengd ferðar
3 - 18 klst
Með gjafabréfi frá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum getur þú boðið þínum nánustu upp á ógleymanlega upplifun í íslenskri náttúru.
Við hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum bjóðum upp á fjölbreytt úrval ævintýra- og afþreyingaferða sem henta öllum aldurs- og getuhópum. Við leggjum ríka áherslu á persónulega upplifun í fámennum hópum í ferðum okkar. Gjafabréf í ferðir okkar er því tilvalin gjöf handa þeim sem hafa gaman af því að ferðast um landið og skapa ógleymanlegar minningar!
Hér má sjá nánari upplýsingar um þær ferðir sem eru í boði hjá okkur 2020-21:
Jöklaganga á Sólheimajökli (9.490 kr)
Auðveld jöklaganga fyrir alla fjölskylduna.
Fjöll, fjara og flugvélarflak (19.900 kr)
Vinsælasta ferðin okkar, 2ja klst fjóhjólaferð í mögnuðu landslagi á Sólheimasandi og giljunum undir Mýrdalsjökli.
Express útgáfa af fjórhjólaferðinni, farið að DC3 flugvélaflakinu.
Kayaksigling við jökulsporð Sólheimajökuls (16.700 kr)
Sigldu um stórfenglegt lónið við rætur Sólheimajökuls og njóttu náttúrufegurðarinnar undir handleiðslu reyndra leiðsögumanna.
Gönguferð á hæsta tind landsins Hvannadalshnjúk er ógleymanleg upplifun. Hægt að velja um að fara gangandi eða á fjallaskíðum.
Stórkostleg fjallganga í heimi jökla og hárra tinda.
Smalaleiðin meðfram Sólheimajökli (18.800 kr)
Gönguferð meðfram Sólheimajökli með stórbrotnu útsýni yfir Eyjafjallajökul, Sólheimajökul og Suðurströndina.
Laugavegurinn á 5 dögum (219.900 kr)
Gakktu Laugaveginn í fylgd með reyndum fjallaleiðsögumanni. Í þessari útgáfu er allt innifalið, fullt fæði, skálar og farangursflutningur!
Núpsstaðaskógur - Skaftafell (85.000 kr)
Bakpokaferð um eina mögnuðustu gönguleið á landinu. Gengið upp Núpsárgljúfur, Skeiðarárjökull þveraður, farið yfir Skaftafellsfjöll og niður í Morsárdal. Þessu sinni verður boðið bæði upp á kvennaferð og blandaða brottför.
Athugið að gjafakortin gilda upp í skipulagðar brottfarir hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Ef óskað er eftir prívat brottför má búast við því að kostnaðurinn verði meiri en þá er hægt að nota gjafakortin upp í heildarkostnað.