Staða: Ívar er einn af þremur gædum fyrirtækisins sem metnir voru inn í þjálfunarprógramið ÍFLM sem ÍFLM Fjallaleiðsögumaður [NZMGA Alpine Trekking Guide]. Ívar stýrir verkefnum ÍFLM sem lúta að fjallamennsku og jöklagædun auk þess að gæda stöku bakpokaferðir, skíðaferðir og leiðangra.
Menntun: Sem ÍFLM Fjallaleiðsögumaður hefur Ívar lokið námskeiðinu fyrsta hjálp í óbyggðum og 8 daga Level I snjóflóðanámskeiði frá Kanadíska Snjóflóðasambandinu [CAA]. Milli þess að gæda á sumrin hefur Ívar klárað gráðu í iðnaðartækinfræði og flutninga verkfræði. Auk íslensku og ensku talar Ívar reiprennandi þýsku. Ívar er með aukin ökuréttindi.
Sérhæfing: Ívar telst til reyndustu ísklifrara landsins og tekur því gjarnan að sér verkefni tengd því. Hann hefur einnig góðan almennan bakgrunn í fjallamennsku og hefur því verið leiðsögumaður í nokkrum metnaðarfyllstu ferðum ÍFLM erlendis, eins á á Mont Blanc, Elbrus og Vinson á Suðurskautslandinu auk þess að gæda gönguskíðaleiðangra og fjallaskíðaferðir. Ívar er yfirleiðsögumaður ÍFLM með allt sem snýr að fjallaleiðsögn og jöklagædun og sér sem slíkur um stæðstan hluta af starfsmannaþjálfun fyrirtækisins. Hann er einnig reyndasti ísklifurgæd ÍFLM. Síðast en ekki síst er Ívar heimsfrægur í þýskalandi eins og sjá má hér: Olli og Ívar við Eyjafjallajökul & Olli og Ívar í Ísklifri
Myndasíðu Ívars má sjá hér:picasaweb.google.com/ivarfinn
Nýleg verðlaun:
Skrifstofa:
Bankastræti 2
101 Reykjavík
Tölvupóstur:
mountainguides@mountainguides.is
Sími/Fax:
Sími: +354 587 9999
Fax:+354 587 9996