Vel heppnað kynningarkvöld

Það var margt um mannin á kynningarkvöldi Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum.  Ætla má að 250 manns hafi mætt til að hlýða á reynda fjallaleiðsögumenn fara yfir dagskrá Toppaðu og fræða gesti um fjallgöngur og kosti fjallaþjálfunar.  Glærur frá kynningarfundinum má skoða með því að smella hér.
Áhugi á útivist,og fjallabrölti, hefur farið vaxandi undanfarin misseri og það var ljóst af stemningunni á fundinum að dæma að margir ætla sér á toppinn í ár.  Íslenskir Fjallaleiðsögumenn leggja metnað sinn í að koma fólki í fjallaform fyrir hátindagöngur með vel skipulagðri dagskrá, fræðslu og leiðsögufólki sem býr yfir mikilli reynslu, þekkingu og sannkallaðri fjallaástríðu. 

Langar þig til að efla líkamlegt ástand og auka andans úthald?  Kynntu þér þá dagskrá Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og skráðu þig til þátttöku

Til baka