Magnað útsýni af Meðalfelli

Hópur Fjallkvenna, gamalla og nýrra, gekk á Meðalfell í Kjós, laugardaginn 6. febrúar undir forystu Helgu Maríu Heiðarsdóttur, fjallaleiðsögukonu. Lagt var upp frá vesturenda fellsins beint upp talsvert bratta hlíð. Ekki virtist það valda göngukonum neinum vandræðum og þegar upp á fyrsta hjallann kom, Harðhausinn, var mæði kastað og blásið úr nösum áður en áfram var haldið um Hurð á hátindinn. Skammt frá hátindinum fannst skjól þar sem sest var niður og nesti snætt. Útsýni af Meðalfelli er mikilfengleg og var með besta móti þennan bjarta dag. Sást allt vestur á Snæfellsjökul og norður til Oks og Geitlandsjökuls. Þá var Hvalfellið tilkomumikið, ekki ósvipað sjálfri fjalladrottningunni. Þarna gafst svo sannarlega tækifæri til þess að njóta útsýnisins fjær og nær, en norðurhluti Esjunnar var einnig skoðaður í krók og kring. Eftir toppamynd var haldið nánast sömu leið til baka og tók gangan í heild um 2 og hálfan tíma. Myndir í ferðinni tók fjallkonan Silja Rut og myndirnar má skoða hér. Verið endilega duglegar við að merkja nöfnin ykkar inn á myndirnar!

Til baka