Kalsasamur Keilir
Laugardaginn 13. febrúar gengu 18 vaskar fjallkonur til fundar við Keili. Ekið var úr húðarrigningu höfðuborgarinnar og lyftist brúnin á fjallkonum þegar talsvert dró úr úrkomunni eftir því sem vestar dró og blasti Keilir myndarlegur við af Reykjanesbrautinni. Hins vegar dró hann að sér ský eftir því sem kvennaskarinn nálgaðist, rétt eins og hann væri eitthvað feiminn og þegar göngukonur lögðu af stað var fjallið með öllu hulið sjónum og heldur tekið að rigna. Ekki létu fjallkonur það á sig fá en örkuðu yfir Afstapahraunið og melansa austan undir fjallinu og upp á sjálfan Keilinn án þess að sjá nokkuð nema rétt fram fyrir tærnar á sér og aftan á næstu konu. Uppi á hátindinum blés líka óhóflega sem ekki kom í veg fyrir að nesti var snætt og kvittað fyrir í gestabók staðarins áður en haldið var sömu leið til baka. Óhætt er að segja að vatnsheldu flíkurnar hafi sannað gildi sitt í þessari göngu. Myndir í göngunni tók Silja Rut að venju og þær má sjá hér
Til baka
English
Íslenska

















