Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fyrstir Íslendinga á Mt. Cook
| Atli og James á tindi Mt. Cooks |
Síðastliðin ár hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fengið Nýsjálenskan fjallaleiðsögumann til þess að prófa alla okkar jöklaleiðsögumenn eftir nýsjálenskum stöðlum um jöklaleiðsögn. Með slíkum stimpli opnast leið fyrir leiðsögumenn okkar til þess að vinna á Nýja Sjálandi við jöklaleiðsögn. Tveir leiðsögumenn, Atli Pálsson og James McEwan, nýttu þetta tækifæri og vinna þennan vetur á Fox jöklinum á Nýja Sjálandi á meðan ferðamannastraumurinn er í lágmarki hérlendis.
Í gær 25. janúar nýttu þeir fríið sitt til þess að klífa hæsta fjall Nýja Sjálands, Mt. Cook 3.754 m. hátt. Atli varð þar með fyrstur Íslendinga til þess að klífa Mt. Cook. Aðstæður á fjallinu voru með besta móti, veður frábært, heiðskýrt eins og sést á mynd. Fjallganga sem þessi er enginn skottúr, heldur fjögurra daga leið.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn óska Atla og James til hamingju með þennan sigur og hlakka til þess að sjá þá leiðsegja á íslenskum jöklum næsta sumar.
Hér má lesa nánar um nýsjálensku staðlana sem við förum eftir.
| Atli Pálsson | James McEwan |

English
Íslenska

















