Hvannadalshnúkur bíður þín

Nú eru Hnúksferðirnar okkar komnar á fullt skrið og fram til þessa höfum við haft 100% árangur í uppstigi á Hnúkinn í vor.  Næstu helgi er verðurspáin hreint með ólíkindum (lítill vindur, þokkalegur hiti og engin úrkoma) og því getum við ekki á okkur setið og bent áhugasömum á þá staðreynd að fátt er fallegra en að standa á fjallstoppi í góðu skyggni og mildu veðri og sjá undirlendið breiða úr sér við fjallsrætur og út á haf.  Hægt er að bóka ferð á Hnúkinn á heimasíðu Fjallaleiðsögumanna og fá frekari upplýsingar í síma 587 9999. 

Sjáumst á toppi veraldar ... á Íslandi!

Til baka