Fyrsta ganga Toppaðu með 66°Norður og Fjallaleiðsögumönnum
Miðvikudagskvöldið 10. febrúar lagði fríður flokkur upp í fyrstu göngu dagskrárinnar Toppaðu með 66°Norður og Fjallaleiðsögumönnum. Gengið var frá Vífilsstaðavatni, um Dýjakróka og upp á Vífilsstaðahlíðina áður en hallaði aftur undan fæti niður og meðfram hlíðinni til baka. Reyndist vegalengdin 7, 5 kílómetrar og tók í heildina uþb 1 og hálfa klukkustund. Fjölmennt var í þessari fyrstu göngu og lögðu 181 land undir fót auk nokkurra ferfætlinga sem skokkuðu með og virtust hafa mun minna fyrir þessu en mannfólkið. Óhætt er að segja að höfuð- og vasaljós hafi skipt sköpum fyrir göngufólk, enda ekki svo auðvelt að fóta sig í aurbleytu og lúpínu sinu, en stígurinn hvarf í hvorutveggja á tímabili. Allir komust þó klakklaust frá þessari fyrstu áskorun og augljóst að öflugur hópur stefnir á Hvannadalshnúk í vor.
Til baka
English
Íslenska

















