Fyrirlestur Michael Grocott um háfjallaveiki vel sóttur
66°Norður og FÍFL (Félag íslenskra fjallalækna) héldu velsóttan fyrirlestur í nær fullum stóra sal Hótel Nordica fimmtudaginn 18. mars. Fyrirlesturinn var fyrst og fremst haldinn fyrir hópinn Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, en var opinn öllum sem höfðu áhuga. Fyrirlesari kvöldsins var hinn heimsfrægi fjallagarpur og gjörgæslulæknir frá London, Michael Grocott. Michael Grocott hefur klifið mörg hæstu fjalla heims, meðal annars Everest (8.850m) og Cho Oyu (8.201m).
Í maí 2007 leiddi Michael Grocott risavaxinn vísindaleiðangur á Everest þar sem rannsökuð voru áhrif súrefnisskorts á mannslíkamann. Yfir 200 manns tóku þátt í leiðangrinum og 8 læknar sem náðu tindinum tóku sýni úr hvorum öðrum á leiðinni upp. Leiðangurinn var kvikmyndaður í bak og fyrir af BBC og hét Xtreme Everest: Doctors in the Death Zone. Þessir þættir voru sýndir hér heima í sjónvarpinu nýlega og vöktu verðskuldaða athygli.
Michael Grocott lýsti leiðangrinum mjög vel í máli og myndum og svaraði fjölmörgum áhugaverðum spurningum utan úr sal.
Tómas Guðbjartsson prófessor og yfirlæknir á skurðdeild Landspítalans hélt einnig fyrirlestur og útskýrði grunnatriði í hæðarveiki og sagði frá ferð FÍFLana á Kilimanjaro (5.895m) í Afríku. Þar þjáðust margir læknanna af hæðarveiki í mismiklum mæli og það fékk þá til þess að kynna sér málið betur og afleiðing þess er þessi fyrirlestur og fleiri slíkir.
Til baka
English
Íslenska
















