Frábær vinkonuferð í fallegu veðri

Laugardaginn 30. janúar skunduðu rúmlega 20 Fjallkonur á Mosfell undir forystu Helgu Maríu Heiðarsdóttur. Veður var með því besta, vægt frost og logn svo landið skartaði sínu fegursta. Gengið var upp að vestan, upp um móa og skriður og trúlegt að hjartað hafi slegið örar við áreynsluna í brattanum. Frá toppnum mátti sjá til nokkurra þeirra tinda sem Fjallkonur eiga eftir að ganga á, s.s. Móskarðahnúka, Skeggja og Keilis.  Vonandi verður framhaldið baðað í góðviðri, þótt rokið, eins og Fjallkonur fengu á Búrfelli fyrir viku, geti verið frískandi öðru hvoru. Smellið hér til að skoða fallegar myndir Silju Rutar frá Mosfelli.

Næsta ganga Fjallkvenna er eftir viku en þá verður gengið á Meðalfell í Kjós (345 m).

Til baka