Fjörutíu og fjögur Fjallafól í Öskjuhlíð!

Klukkan var rétt að slá sex og myrkrið næstum orðið biksvart í gærkveldi þegar hópar Fjallafólks flykktust að úr öllum áttum. Rétt í þann mund að yfirfólið hóf upp raust sína til að bjóða viðstadda velkomna ágerðist kólgubakki í suðvestri sem jafnharðan snaraði hríðarkömpum yfir vammlaus fjallafólin og nokkra mállleysingja í hópi hljómsveitarmeðlima sem þar stóðu hjá! Ekkert var dregið undan, hamslaus haglélin buldu á léttklæddu Fjallafólki sem átti sér einskis ills von og hímdi með rassinn upp í veðurofsann. Þessa samkomu skyldi kæfa í fæðingu, ellegar sjá hverjir stæðu eftir og gefa þeim séns.

Allt kom fyrir ekki... enda styttir öll él upp um síðir. Fjallafólk strunsaði nú af stað og gekk greitt. Fyrst var gengið niður, svo upp, svo stoppað, gerðar æfingar og aftur brunað niður og aftur upp, hæfilegur sviði í lærum, aukinn hjartsláttur og tíðari öndun. Markmiðinu var náð á klukkustund og 15 mínútur til viðbótar nýttar til að teygja léttilega á helstu vöðvahópum.

Markmið þriðjudagsþrekæfinga Fjallafólks er að auka þrek fólks til fjalla svo enn skemmtilegra sé að ganga á fjöll í góðra vina hópi.
Þriðjudagsþrekæfingarnar eru haldnar þar sem aðstæður eru góðar og er póstur sendur á mánudegi á skráða félaga.

Ef þú hefur áhuga á að slást í hópinn ættirðu að kíkja á þetta.

Fjallafólk gekk á Högnhöfða síðastliðinn laugardag. Hér eru myndir frá þeirri ferð.

Til baka