Fjallaskíðaferð af Hvannadalshnjúk

Fjallaskíðaferð niður af Hvannadalshnjúki er einstök upplifun. Tveir leiðsögumenn Íslenskra Fjallaleiðsögumanna renndu sér niður Svínafellsjökulinn síðastliðinn föstudag í 20°C og sól. Þeir voru bæði að leika sér og að athuga aðstæður fyrir fjallaskíðaferð sem verður nú í vikunni. Enn eru pláss laus í brottförina núna á fimmtudag. Veðurútlit er gott, líklega snjóar í efri brekkunum á miðvikudag en svo á að vera létt yfir á fimmtudaginn og hlýtt. Nánari  upplýsingar um ferðina má finna á síðu fjallaskíðaferðarinnar á Hvannadalshnjúk.

Til baka