Fjallafólk tugum saman á Högnhöfða

En til að vera ögn nákvæmari þá voru það rétt rúmir tveir tugir sem gengu saman í frekar risjóttu veðri á hinn glæsilega Högnhöfða (1002 m) ofan Úthlíðar í Biskupstungum síðastliðinn laugardag. Nokkuð hafði snjóað til fjalla daginn áður og góðir skaflar komnir í gil og lægðir. Hitastig var vel yfir frostmarki langleiðina á toppinn svo snjórinn gaf góða festu á leið upp einu bröttu skriðuna á leiðinni. Smelltu hér til að skoða myndir frá ferðinni á Högnhöfða. Næstkomandi þriðjudag verður fyrsta vikulega þrekæfing Fjallafólks en næsta fjallganga verður hinn 20. febrúar þegar gengið verður upp úr Botnsdal á Vestursúlu og jafnvel víðar ef ludnin verður létt og aðstæður góðar. Ef þú villt slást í hópinn ættirðu að kíkja á dagskrá Fjallafólks hér, eða skrá þig í gengið í síma 5879999.

Til baka