Blindir og sjónskertir á Sólheimajökli
Alla jafna þykir það ekki fréttnæmt að Íslenskir fjallaleiðsögumenn leiðsegji ferðamönnum á Sólheimajökli. Það er hinsvegar ekki algengt að blindir ofurhugar leggi leið sína á jökul. Sú var raunin síðastliðin miðvikudag, þegar átta ævintýraþyrstir Þjóðverjar sem allir eru blindir skelltu sér ásamt aðstoðarfólki og leiðsögumönnum frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í jöklagöngu á Sólheimajökli.
Það er erfitt fyrir sjáandi að ímynda sér hvernig njóta megi kyngikrafts Sólheimajökuls og stórbrotins landslags svæðisins í kring í kolniðamyrkri. Það var því ekki síður áskorun fyrir leiðsögufólk Fjallaleiðsögumanna að matreiða fegurðina með öðrum og dýpri hætti en venja er til. Fyrir hópi leiðsögumanna fór Leifur Örn Svavarsson en með honum voru Jón Gauti Jónsson, Helga María Heiðarsdóttir og Katrín Pétursdóttir. Lögð var áhersla á að skapa sem mesta upplifun fyrir önnur skilningarvit en sjónina. Hlustað var mismunandi lækjarnið leysingarvatns á yfirborði jökulsins, áhrif mismunandi hitastigs golunnar (fallvindsins) fundið á vanganum, smakkað á mörghundruð ára gömlum ísmolum sem fólk hjó til með ísöxum sínum og þreifað á muninum á ösku, sandi og leir. Áttmenningarnir munu hafa verið mjög ánægðir með þessa nýju upplifun og að sögn Leifs Arnar fólst ekki síður ný og góð upplifun í henni fyrir þá sem fulla sjón hafa og vísuðu veginn.
![]()
Það gleður okkur ávallt hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum þegar við getum aðstoðað fólk við að upplifa töfra og náttúru Íslands - sérstaklega þegar með í för eru þeir sem ekki hafa sömu tækifæri og við hin sem e.t.v. tökum hlutum sem sjálfsögðum.
Hér er hægt að sjá myndskeið frá göngunni sem hinn frábæri ljósmyndari Ragnar Axelsson tók fyrir morgunblaðið.

English
Íslenska
















