Á Hnúk og Hrútsfjallstindum í brakandi blíðu

Þann 29. maí stóðu ríflega 130 Toppaðu-farar á hæsta tindi landsins, Hvannadalshnúki, í brakandi blíðu undir heiðum himni.  Um 20 manns úr gönguprógramminu tóku annan pól í hæðina og klifu upp á Hrútsfjallstinda sama dag, hvaðan þau gerðu heiðarlega tilraun til að veifa til félaga sinna á Hnúknum. 

Síðan í febrúar hafa meðlimir Toppaðu með 66°Norður og Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum æft markvisst fyrir þennan dag.  Þeir hafa fengið fræðslu um fatnað og næringu sem hæfa fjallaferðum og notkun útbúnaðar og lagt undir fót sífellt hærri og brattari fjöll.  Umbun vetraræfinganna er svo sjálf gangan á Hvannadalshnúk, eða Hrútsfjallstinda, og það er óhætt að segja frá því að hamingjan hafi skinið af hverju andliti þegar fjallgöngufólkið kom niður Sandfellið eftir vel heppnað uppstig sl. laugardag.  Þau sigruðu ekki bara fjallið heldu sjálf sig í leiðinni!

Næsta laugardag, þann 5. júní, ætla þau sem ekki áttu heimangengt þann 29. maí að feta í fótspor æfingafélaga sinna og klífa Hnúkinn og óskum við þeim góðrar ferðar og framúrskarandi verðurspár. Ekki er þess svo langt að bíða að Fjallakonur Íslands láti á göngukrafta sína reyna, en þær stefna á tindinn á sjálfan kvennréttindadaginn 19. júní.

Upplýsingar um fjallgönguhópana okkar má nálgast með því að smella hér.

Til baka