Vetrarfjallamennska - IMG116
Grunnatriði í fjallamennsku að vetrarlagi
Næsta námskeið helgina 27.-28. febrúar og bóklegur hluti að kveldi 24. febrúar.
Markmið:
Markmið námskeiðisins er að nemendur læri grunnatriði fjallamennsku og klifurs að vetrarlagi. Að loknu námskeiðinu eiga þátttakendur að vera færir um að fara í og skipuleggja stuttar ferðir til að byggja upp eigin reynslu. Enn fremur eiga þeir að geta tekist á við auðvelt snjóklifur af öryggi. Nemendum er þó nauðsynlegt að kynna sér notkun korta og nútíma leiðsögutækja áður en haldið er í slíkar ferðir. Námskeiðið hentar öllum þeim sem hafa áhuga á vetrarferðamennsku
Kröfur:
Ekki er gerð krafa um önnur námskeið. Þátttakendur verða að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi og þeir verða að mæta á verklegan hluta námskeiðisins í viðeigandi fatnaði og með viðeigandi viðlegubúnað til vetrarferða, sjá útbúnaðarlista sem verður útdeilt til þátttakenda.
ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 29.500 kr, vinsamlegast hafið samband við Jón Gauta

Innifalið : 1 leiðbeinandi á hverja 6 þátttakendur, sameiginlegur fjallabúnaður, námsgögn
Ekki innifalið : Akstur á vettvang, sérhæfður persónulegur búnaður ss klifurbelti, læst karabína, tvær klifuraxir, hjálmur, mannbroddar, snjóflóðaýlir, stöng og skófla
Hafa í huga : Ítarlegur útbúanaðarlisti verður afhentur við upphaf námskeiðsins. Kennari áskilur sér rétt til að hafna notkunn búnaðar í eigu þátttakenda. Hægt er að leigja viðeigandi klifurbúnað hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum.

English
Íslenska

















