Snjóflóðanámskeið - IMG115

Hápunktar

  • Námskeið 2010
  • 2. febrúar - bóklegt
  • 6. febrúar - verklegt
Verð frá: 20.000 ISK

Mat á snjóflóðahættun og viðbrögð við snjóflóðum. Næsta námskeið 2. febrúar (bóklegt) og 6. febrúar (verklegt). Leiðbeinandi verður Leifur Örn Svavarsson fjallaleiðsögumaður og sérfræðingur Veðurstofunnar í snjóflóðum.

Markmið:  
Námskeiðinu er ætlað að kynna snjóflóð og viðbrögð og varnir við þeim fyrir útivistarfólki sem stundar vetrarferðamennsku, skíðafólki, brettafólki og göngufólki. Í námskeiðslok eiga þátttakendur að geta ferðast af öryggi í fjalllendi að vetri til.
Leiðbeinandi verður Leifur Örn Svavarsson fjallaleiðsögumaður og sérfræðingur Veðurstofunnar í snjóflóðum.
   
Kröfur:
Engar forkröfur eru fyrir þátttöku í þessu námskeiði en kostur ef þátttakendur hafa gaman að snjó.

ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 16.500 kr, vinsamlegast hafið samband við Jón Gauta


Innifalið : 1 leiðbeinandi á hverja 8 þátttakendur,
Ekki innifalið : Akstur á vettvang, sérhæfður búnaður ss snjóflóðaýlir, -stöng og skófla
Hafa í huga : Allan viðeigandi búnað er hægt að leigja hjá Fjallaleiðsögumönnum á Vagnhöfða 7.
Upphafsstaður : Klifurhúsið