Ísklifur 2 - IMG114
Framhaldsnámskeið í Ísklifri
Frestað vegna lélegra aðstæðna í janúar.
Ný dagsetning ákveðin um leið og aðstæður batna.
Ný dagsetning ákveðin um leið og aðstæður batna.
Markmið:
Markmið framhaldsnámskeiðs í ísklifri er að gera nemendur hæfa til að leiða auðveldar ísklifurleiðir og þannig hæfa til þess að byrja að safna í eigin reynslubanka. Lögð er áhersla á að kenna notkun trygginga, uppsetningu akkera og aðferðir til að síga úr leiðum. Þetta námskeið er haldið í frosnum fossum (vatns ís).

Kröfur:
Gerð er krafa um að þátttakendur hafi farið á Ísklifur 1 eða hafi einhverja reynslu af ísklifri. Einnig telst það kostur að hafa farið á klettaklifur eða vetrarfjallamennsku námskeið.
Gerð er krafa um að þátttakendur hafi farið á Ísklifur 1 eða hafi einhverja reynslu af ísklifri. Einnig telst það kostur að hafa farið á klettaklifur eða vetrarfjallamennsku námskeið.
Ath. Námskeiðinu 13. janúar hefur verið frestað vegna óhagstæðra ísaðstæðna. Fylgist með næst þegar fer að frjósa.
Ath. Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 19.900 kr, vinsamlegast hafið samband við Jón Gauta

Innifalið : 1 leiðbeinandi á hverja 4 þátttakendur, allur sameiginlegur jökla/klifurbúnaður
Ekki innifalið : Akstur á klifurvettvang, persónulegur búnaður ss klifurbelti, læst karabína, tvær klifuraxir, hjálmur mannbroddar og stífir klifurskór
Hafa í huga : Allan búnað er hægt að leigja hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Til að fá sem mest úr námskeiðinu er mælt með að þátttakendur mæti í stífum klifurskóm.Kennari áskilur sér rétt til að hafna notkun búnaðar í eigu þátttakenda.

English
Íslenska