Ísklifur 1 - byrjendanámskeið - IMG112

Verð frá: 21.000 ISK

Byrjendanámskeið - Eitt kvöld í miðri viku og heill dagur á skriðjökli.

Markmið:
Meginmarkmið námskeiðsins er að kenna grunnatriði ísklifurs. Farið er í helstu hnúta og kynntar aðferðir til að setja upp tryggingar; akkeri og sigakkeri. Mest áhersla er þó lögð á að þátttakendur tileinki sér réttar hreyfingar í klifri. Námskeiðið hentar jafnt þeim sem hyggjast stunda ísklifur og hinum sem vilja einungis fá innsýn í þessa skemmtilegu íþrótt.
Kröfur:
Ekki eru gerðar kröfur um önnur námskeið þó það teljist kostur að hafa farið á klettaklifur eða vetrarfjallamennsku námskeið. Þátttakendum ber að koma í viðeigandi útivistarklæðnaði.

ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 17.900 kr, vinsamlegast hafið samband við dagny@mountainguides.is


Innifalið : 1 leiðbeinandi á hverja 6 þátttakendur, allur sameiginlegur jökla/klifurbúnaður.
Ekki innifalið : Akstur á klifurvettvang, sérhæfður persónulegur búnaður ss klifurbelti, læst karabína, tvær klifuraxir, hjálmur og mannbroddar, stífir skór
Hafa í huga : Allan búnað er hægt að leigja hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. Kennari áskilur sér rétt til að hafna notkun búnaðar í eigu þátttakenda. Til að fá sem mest út úr námskeiðinu er mælt með að þátttakendur mæti í stífum klifurskóm.
Lengd : Námskeiðið tekur eitt kvöld og einn dag þar sem haldið er á vit skriðjökuls.
Upphafsstaður : Klifurhúsið