Fjallaskíðanámsskeið - IMG117
Fjallaskíðun er frelsi. Bóklegt 3. mars Verklegt laugardaginn 6. mars
Markmið:
Námskeiðinu er ætlað að kynna fjallaskíðamennsku fyrir fólki svo það geti í framhaldinu hafið skíðamennsku í fjalllendi og rennt sér utan brauta. Farið er yfir viðeigandi búnað og notagildi hans við fjallaskíðun. Upplagt námskeið fyrir þá sem vilja kynnast færinu og upplifa stemmingunni utan hefðbundinna skíðasvæða. Búnaðurinn, tæknin og öryggismálin.
Námskeið:
Námskeiðið er eitt kvöld (3. mars) og einn dagur (6. mars).
Kröfur:
Engar forkröfur eru fyrir þátttöku á námskeiðinu en fínt er ef nemendur kunna að renna sér á skíðum!
ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 16.500 kr, vinsamlegast hafið samband við Jón Gauta

Innifalið : 1 leiðbeinandi á hverja 8 þátttakendur
Ekki innifalið : Fjallaskíði, fjallaskíðaskór, skíðastafir, ísöxi, snjóflóðaýlir, skófla og snjóflóðastöng.
Hafa í huga : Athugið að allan nauðsynlegan búnað er hægt að leigja hjá Fjallaleiðsögumönnum og/eða Fjallakofanum
Upphafsstaður : Klifurhúsið

English
Íslenska

















