Almenn Fjallamennska - IMG 111

Verð frá: 149.000 ISK

Námskeið í almennri fjallamennsku haldið í apríl 2010 - Markmið námskeiðsins er að veita mönnum allhliða grunn í fjallamensku og gera þá hæfari til þess að fara klifur og jöklaferðir á eigin vegum.

Alhliða námskeið í fjallamennsku

Hvenær: 1. - 6. apríl 2010
Hve lengi: 6 dagar.
Hvar: Skaftafelli.

Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita mönnum alhliða grunn í fjallamensku og gera þá hæfari til þess að fara klifur- og jöklaferðir á eigin vegum. Á námskeiðinu er farið yfir efni námskeiðana; Vetrarfjallamennska, Jöklanámskeið, Ísklifur 1 og Ísklifur 2.

Kröfur:
Ekki er gerð krafa um önnur námskeið, en þátttakendur verða að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi. Þá verða þátttakendur að mæta í viðeigandi útivistar fatnaði og með viðeigandi viðlegubúnað til vetrarferða. Skráðir þátttakendur fá sendan ítarlegan útbúnaðarlista. 

ATH: Netklúbbsverð og verð til félaga í Íslenska Alpaklúbbnum er 119.900 kr, vinsamlegast hafið samband við dagny@mountainguides.is


Innifalið : Allur sameiginlegur jökla og öryggisbúnaður, 1 leiðbeinandi á hverja 6 þátttakendur,jöklatjöld til notkunar þegar gist er á jöklinum.
Ekki innifalið : Akstur til og frá Skaftafelli, gisting og fæði. Persónulegur jökla/klifurbúnaður, meðfylgjandi listi er aðeins til viðmiðunar. Góður skjólfatnaður til vetrarferða og stífir skór. Svefnpoki, skíðagleraugu, mannbroddar, tvær klifuraxir, klifurbelti, læst karabína, hjálmur.
Hafa í huga : Hægt er að leigja viðeigandi klifurog jöklabúnað hjá Fjallaleiðsögumönnum á Vagnhöfða 7. Til að fá sem mest út úr námskeiðinu er mælt með að þátttakendur mæti í stífum klifurskóm. Kennari áskilur sér rétt til að hafna notkun búnaðar í eigu þátttakenda.
Upphafsstaður : Skaftafell