
Fyrir áhugafólk um fjallamennsku eru Alpafjöllin áskorun sem erfitt,
jafnvel ómögulegt, er að skorast undan. Hver hefur svo sem ekki heyrt
minnst á Eiger, Matterhorn, jafnvel líka Grand Jorasse, Petit Dru, Dent
du Giant o.fl.? Svo ekki sé minnst á Mont Blanc (Fjallið hvíta) sem er
hæsti tindur Alpanna (4.808m). Þetta eru einfaldlega fjöll sem seiða
mann til sín og maður er ekki í rónni fyrr en að hafa stigið fæti sínum á
tind einhverra þeirra - eða í það minnsta gert heiðarlega tilraun til
þess.