Útbúnaðarlisti fyrir lengri skíðaferðir á jöklum og hálendi Íslands

Ferðafatnaður (til að klæðast á göngu).
Nærskyrta úr ullar eða flís efni (t.d. Stillongs).
Þunn peysa eða skyrta úr ull eða flís.
Lopapeysa eða þykk flíspeysa.
Ullarsokkar.
Buxur þurfa að vera sterkar og úr efni sem þornar fljótt. Ýmislegt kemur til greina, t.d. hnébuxur úr teygjanlegu efni, flísbuxur, buxur úr ullarefni eða pólyester.

Í pokana:
Ullarnærskyrta
Síðar nærbuxur
Flís buxur
Aukapeysa þunn
Aukapeysa þykk
Dún eða fíber úlpa
Dún eða fíber buxur
Dún eða fíber sokkar
3-4 pör af ullarsokkum(ullarsokkar með frotté fara t.d. vel með fætur). Forðast ber að klæðast sportsokkum úr bómull fyrir innan ullarsokkana.
Góðir íslenskir ullarvettlingar, 2 - 3 pör
Þunnir fingravettlingar flís/silki
Utanyfirvettlingar úr vatnsheldu efni (snjóvettlingar)
Ullarhúfa og lambhúshetta og e.t.v. ennisband
Andlitsgríma
Jakki eða anorak úr vatnsheldu efni og með góðri hettu , annað hvort Goretex eða sambærilegt, eða gúmmígalli (t.d. fást þeir mjög léttir hjá 66°N).
Utanyfirbuxur úr sama efni. Ath: ef axlabönd fylgja ekki með buxunum er oftast mjög gott að bæta þeim við sjálfur.
Legghlífar, helst „geitur“

Annar búnaður:
Pokar. Til ferðarinnar þarf 2-3 mismunandi poka. Einn lítinn dagsferðapoka fyrir allt smádótið og nesti til dagsins. Síðan er gott að hafa megnið af dótinu í 50-70 lítra poka eða bakpoka. Svefnpoka og ýmislegt annað til nota í skála eða tjaldi er gott að geyma í vatnsheldum „sjópoka“.
Svefnpoki með dún eða fíberfyllingu. Nauðsynlegt er að pokinn sé léttur og hlýr og því mælum við helst með gæsadún eða feber-svefnpokum.
Hlífðarpoki úr GoreTex eða sambærilegu.
Einangrunardýnur (1-2) úr frauði og helst ein loftdýna - ekki þó svampdýna eða vindsæng.

Skíðabúnaður:
Svokölluð ferðaskíði (Touring skíði eða cross country skíði) eru best við sem fjölbreyttilegar aðstæður eins og oft eru á hálendi landsins. Þetta eru breið gönguskíði með stálköntum og með sterkum bindingum, ýmist Rottefella 75mm eða álíka (stífar plötubindingar eða fjallaskíðabindingar gagnast illa til ferðalaga).
Sæmilega háir skíðagönguskór með víbramsóla.
Gönguskíðastafir með sæmilega stórri keilu.

Og að lokum ýmislegt smálegt sem gott er að hafa með:
Tannbursti
Dálítið tannkrem
Salernispappír (smáræði)
Eldfæri
Mjög lítið handklæði
Sólgleraugu og sólvarnarkrem (full vörn)
Skíðagleraugu
E.t.v. myndavél og filmur
Vasahnífur
Höfuð- eða vasaljós
Aukarafhlöður
„Inni“skór eða annað til að fara í utanyfir sokka á kvöldin (og út til að míga).
0,7 - 1,0 lítra plastflaska undir vatn
Hitabrúsi 0,7 lítra
Vatnsheld og innihaldsrík bókmennt

Til baka