Vatnajökull að vorlagi - IMG51
Níu daga skíðagönguferð að vorlagi um stærsta jökul landsins, farið upp frá Jökulheimum, um Grímsvötn og á Öræfajökul.
Níu daga skíðagönguferð um stærsta jökul landsins, farið upp frá Jökulheimum, um Grímsvötn og á Öræfajökul. Farangur er dreginn á sleðum (púlkum) sem eru mjög léttar í drætti fyrir þetta stutta ferð. Gist er í tjöldum og skálum. Á þessum tíma geta andstæður vetrarríkisins á jökli og vorsins sem teygir sig upp af láglendinu skapað einstakan kynjaheim, baðaðan í miðnætursólinni.
Dagleiðir: 7 - 9 klst.
Gönguvegalengd: 130 - 150 km.
Gönguhæð: 850 - 2000 m.y.s.
Mesta hækkun: 750 m.
Búnaðarlisti
Innifalið : Leiðsögn og fararstjórn, akstur til og frá Reykjavík, skálagjöld, allur matur í ferðinni, tjöld, sameiginlegur útbúnaður og eldunaráhöld. 6-12 í hóp.
Aukagjald:
Fyrir 4-5 manna hóp, 25.000ISK á mann.
Hafa í huga : Kvöldið fyrir bröttför er fundur með leiðsögumanni þar sem farið er yfir búnað og ferðaáætlunina.
Upphafsstaður : Reykjavík.

English
Íslenska
















