Landmannalaugar í vetrarham - IMG53

Hápunktar

  • Gönguskíðaferð
  • Landmannalaugar
  • Heit jarðböð
  • Náttúrufegurð
Verð frá: 135.000 ISK

6 daga gönguskíðaferð í Landmannalaugum. Staðfest brottför 20. febrúar 2010.

Landmannalaugar hafa um árabil verið eitt vinsælasta gönguskíðasvæðið á Íslandi, enda óviðjafnanlegt á heimsvísu. Fáir ef einhverjir aðrir staðir bjóða upp á jafn einstakt samspil elds og ísa, þar sem snjóakistan sem Fjallabakssvæðið er er brotið upp af rjúkandi hverasvæðum, heitum ám og heitum baðlaugum.

Margir þekkja Landmannalaugar að sumarlagi fyrir einstaka náttúrufegurð og mikinn fjölda ferðamanna. Á veturna kemst náttúrufegurðin á allt annað stig, en svæðið verður mannlaust eða því sem næst. Það er því hægt að ganga á skíðum út frá skálanum og skoða náttúrufegurðina í kyrrð og ró dögum saman með notalegum kvöldstundum í heitum skálanum og heitri lauginni.

  • Á gönguskíðum: 6 dagar
  • Ganga á dag: 5-6 tímar
  • Heildarvegalengd: 110 km.
  • Hæðarbil: 400-1100 m.
  • Mesta dagshækkun 500 m.
  • Hópstærð: 6 til 12 þátttakendur

Leiðsögumaður okkar Steinar Sigurðsson setti saman þetta myndband eftir ferð í veturinn 2010.


Innifalið : Leiðsögn í 6 daga, matur í 6 daga, frá hádegismat á fyrsta degi til hádegismats á 6. degi, svefnpokagisting í fjallaskála, eldunartæki og flutningur.
Upphafsstaður : Þátttakendur eru sóttir á gististað eða heimili í Reykjavík morguninn fyrir ferðina.