Tansanía - Kilimanjaro (5.895m) - IMG191
Ferð með bestu mögulegu hæðaraðlögun þar sem ganga á Merufjall áður en tekist er á við sjálft Kilimanjaro hefur sannað gildi sitt.
Í júníbyrjun halda Íslenskir Fjallaleiðsögumenn á ný til Afríku. Nú verður ekki eingöngu tekist á við hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro (5895) heldur ætlum við okkur líka að ganga á Merufjall (4566), sem er ekki síður tilkomumikið. Við hefjum ferðina með 4 daga göngu á Merufjall áður en við leggjum í risann sjálfan, Kilimanjaro. Í hlíðum Merufjalls er líklegt að við sjáum til ýmissa villtra dýra. Við teljum að ganga á Merufjall sé góður undirbúningur fyrir Kilimanjaro ekki síst með tilliti til hæðaraðlögunar. Of algengt er að göngufólk komi upp á Kibo sléttuna illa haldið og því ekki í neinu standi til þess að njóta afreksins, tilfinningarinnar að standa á þaki Afríku. Eftir 10 daga vist í faðmi þessara tígulegu fjalla bíður svo 2ja daga ferð á vit villtra dýra um Ngorongoro gíginn og Manyara garðinn, áður en heim er haldið enda ekki hægt að skilja svo við Afríku að skyggnast ekki aðeins um á slóðum Simba og félaga. Óhætt er að segja að við höfum unnið til þessara síðustu daga á villidýraslóðum og getum því notið þægindanna sem þar eru í boði. Um er að ræða 15 daga ferð sem hæglega er hægt að framlengja fýsi fólk að flatmaga á strönd í ferðalok. Myndir úr ferðinni júní 2008 má sjá hér
Leiðarlýsing / Bólusetningar / Búnaðarlisti
Gisting:
- 2 nætur á sveitasetrinu Ngorongoro Farmhouse. Þar er þjónusta á mun hærra stigi en það sem við eigum að venjast hjá ferðaþjónustu bænda. Við erum í hjarta Masaii landsins og ber sveitasetrið keim af því. Rúmgóð herbergin þar sem andi Karenar Blixen svífur yfir vötnunum eru óviðjafnanleg, rétt eins og sundlaugin sem hægt er að svamla í eftir safaríferð dagsins. Trúlega verst að þurfa að yfirgefa þessa paradís.
- 2 nætur á 4stjörnu hóteli, Hotel Impala og Hotel Aishi
- 3 nætur í fjallaskála. Fjallaskálarnir á Merufjalli eru ekki ósvipaðir íslenskum fjallaskálumm, nema hvað ekki er hægt að búast við að þar sé rennandi vatn eða vatnssalerni líkt og víða á Íslandi. Hins vegar er sæmileg svefn- og mataraðstaða.
- 5 nætur í tjaldi. Slegið er upp tjaldbúðum og gist í tveggja manna tjöldum. Matur er til- og framreiddur í matartjaldi. Engin baðaðstaða og frumstæð salernisaðstaða. Allur búnaður; tjöld, dýnur og eldunar- og mataráhöld eru borin af burðarmönnum.

Innifalið : Íslensk fararstjórn, staðarleiðsögn
Flug til og frá Íslandi. Allur matur nema hádegisverður á fyrsta degi í Tansaníu.
Allur akstur erlendis eins og fram kemur í leiðarlýsingu. Öll gisting eins og tekið er fram í leiðarlýsingu. Tjaldbúnaður, eldunaráhöld og annar sameiginlegur búnaður. Öll þjóðgarðsgjöld (Kili þjóðgarður, Arusha Þjóðgarður og Ngorongoro og Manyara safarísvæðin). Öryggisbúnaður þar með talinn færanlegur þrýstiklefi (gamow bag)
Hafa í huga : Hópstærð: 6 - 16 manns

English
Íslenska

















