Spánn - Majorca - IMG93
Fáir vita að undanfarin ár hefur þessi vinsæla eyja og mannlífið þar gengið í endurnýjun lífdaga sem staður kyrrðar og náttúrfegurðar sem dregið hefur að fólk í gegnum aldir.
Í hugum margra er Mallorca eyja sumarleyfisstaður pakkaferðalanga í leit að sól, sandi og ódýrum drykkjum og víst er að af nógu er að taka. Færri vita hinsvegar að undanfarin ár hefur eyjan og mannlíf þar gengið í endurnýjun lífdaga sem staður kyrrðar og náttúrfegurðar sem dregið hefur að fólk í gegnum aldir. Náttúrufegurð er mikil og saga og menning við hvert fótmál. Óhætt er að segja að Majorca sé orðinn einn af vinsælli áfangastöðum gönguferðafólks í Evrópu.
Sjáið myndir frá einni ferð okkar til Mallorka.

Innifalið : Flug Keflavík - Palma - Keflavík, íslensk leiðsögn og fararstjórn, allur akstur eins og fram kemur í leiðarlýsingu, öll gisting eins og fram kemur í leiðarlýsingu, allur matur meðan á gönguferð stendur
Hafa í huga : Hópstærð: 6 - 16 manns
D1 Keflavík - Palma
Flug frá Íslandi til Palma Majorca. Áætluð lending klukkan 21:30 ekið til Valldemossa og gist þar eina nótt á gistihúsi.
D2 Valldemossa – Deià.
Dagurinn hefst með skoðunarferð um Valdemossa áður en við leggjum land undir fót og höldum yfir til Deià. Leiðin tengir saman tvö þorp sem af mörgum eru talin þau fallegustu á eyjunni. Bæði þorpin hafa um aldir verið heimili listamanna og nú í seinni tíð efnafólks sem leitar í þá fegurð og friðsæld sem þessir staðir bjóða. Á gönguleiðinni gefur að líta ýmsar fornminjar allt frá kolagerðarofnum til kastalaturna. Í dagslok gefst færi að að skoða kaffihús og verslanir í Deià. Kvöldverður og gisting í Can Boi gistiheimilinu. Göngutími 4 klst., hækkun 500 m. og lækkun 700 m.
D3 Dei – Port de Sóller.
Áður en við höldum í hina eiginlegu gönguferð er gengið niður að ströndinni í þorpið Cala de iâ, snoturt fiskiþorp þar sem aldagömul bátaskýlin renna saman við klettana. Eftir sundsprett í sjónum er snæddur hádegisverður á veitingastað þar sem hægt er að gæða sér á Mallorkískum réttum áður en lagt er á stiginn. Leiðin liggur meðfram stórskorinni klettaströnd. Steingarðar, sem mega muna fífil sinn fegri, segja sögu um akuryrkju sem áður var. Stígurinn er sumstaðar ógreiðfær, fallin tré og skriður geta gert göngumönnum erfitt fyrir. Kvöldverður og gisting í La Muleta þaðan sem líklega er eitthvert fegursta útsýni til sjávar sem um getur. Göngutími 4 klst., hækkun 300 m og lækkun 100 m.
D4 Sóller – Tossals Verdes.
Dagurinn hefst á ferð frá Port de Sóller að Sóller í sögufrægri járnbrautarlest. Svæðið er undirlagt af appelsínu- og sítrónutrjám. Þaðan liggur gönguleiðin upp hlykkjóttan stíg að Cuber vatni. Hækkun á þessum kafla eru tæpir 1000 metrar og talsvert bratt, sem getur tekið getur á, sér í lagi ef heitt er í veðri. Leiðin liggur síðan niður eftir gili og um göng sem höggvin hafa verið í klettaveggi til að leiða um þau vatn. Kvöldverður og gisting í Tossals Verdes sem er afskekktur fjallaskáli sem staðið hefur opinn ferðamönnum um árhundruð. Skálinn er vinsæll meðal heimafólks og gesta og aldrei að vita nema við hittum þar annað göngufólk, klettaklifrara og hestamenn – bæði heimamenn og gesti. Göngutími 7 klst., hækkun 900 m. lækkun 500 m.
D5 Tossals – Lluc.
Haldið eftir greiðfærum stíg uppúr skógarþykkninu í burkna, lyng og berar klappir þar til hæsta skarði er náð í 1200 metra hæð í Snjóskaflaskarði. Þaðan liggur leiðin að mestu undan fæti að klaustrinu Lluc sem hefur um aldir verið mikilvægur staður kristni á Spáni og viðkomustaður pílagríma allt fram til dagsins í dag. Kvöldverður og gisting í Son Amer gistiheimilinu sem er gamalt herrasetur. Þar er líka gestastofa þar sem ferðamenn geta fræðst um náttúrfar og menningu ásamt sögu Steinastígsins. Göngutími 6 klst., hækkun 700 m. og lækkun 700 m.
D6 Hvíldardagur í Lluc. Skoðunarferð um klaustrið og nágrenni. Möguleiki á strætóferð að Sa Colobra ströndinni og léttri gönguferð um nágrennið. Kvöldverður og gisting í Son Amer.
D7 Lluc – Pollenca
Greiðfær og vel merktur stígur um gróskumikið skóglendi. Blómstandi Aloa Vera plöntur, appelsínutré og villtar fjallageitur er meðal þess sem fyrir augu ber. Síðasta spölinn þegar gengið er niður úr fjöllunum gefur að líta yfir Alcudia fjörðinn þar sem ferðin endar í Pollenca. Pollenca er líflegur bær þar sem kjörið er að fá sér verðskuldaða hressingu eftir leiðangurinn. Þeir sem ekki geta hætt spreyta sig á tröppunum 300 sem liggja frá torginu upp að kirkju þorpsins. Kvöldverður og gisting í Pont Romá gistiheimilinu en nafnið ber það af nálægri brú sem reist var á tímum Rómverja. Göngutími 5 klst., hækkun 200 m.og lækkun 500 m.
D8 Palma - Keflavík
Ekið til Palma (1.5 tímar). Flug heim til Íslands
Almennt: Mallorca er stærsta eyjan í klasa sem kenndur er við Baleares og er að finna í Miðjarðarhafinu undan ströndum Spánar. Löng hefð er fyrir ferðamennsku á öllum eyjunum og í upphafi voru það listamenn og fólk úr efri stéttum sem lagði grunninn að ferðamannaiðnaðinum en seinna fylgdu sóldýrkendur í kjölfarið enda strandir eyjanna margar hverjar vel fallnar til þess að njóta lífsins á. Í dag er svo að ryðja sér til rúms nýr angi ferðamennsku enda eru eyjarnar ekki minna gósenland fyrir gönguferðalanga en sóldýrkendur. Mallorca er uþb 3700 ferkílómetrar að stærð og þar búa 700.000 manns. Á norðurhluta eyjarinnar er fjallgarðurinn Tramontana uþb 70 km langur og rís hæst í 1445m í Puig Major. Á Mallorca eru spænska og katalónska opinber mál en flestir heimamanna tala einnig ensku eða þýsku.
Menningu Mallorca má rekja langt aftur í aldir en mannvistarleifar frá steinöld hafa fundist á eyjunni. Rómverjar lögðu Mallorca undir sig árið 123 fyrir Kristsburð og lögðu grunn að hagsæld eyjarinnar með ólífuræktun, saltvinnslu og vínyrkju. Rómverjar stofnuðu borgirnar Palma og Alcudía. En Rómarveldi leið undir lok og eyjan varð áfangastaður ólíkra þjóða sem gerðu sig heimakomna þar. Um 900 lögðu Márar eyjuna undir sig og þá má segja að annað blómaskeið hafi hafist en Márarnir komu með ýmsar nýjungar. Áveitur þeirra blésu nýju lífi í landbúnaðinn og ýmis nýbreytni í heimaiðnaði eyjarinnar ýtti undir hagsæld. Eftir að Márar voru reknir burt frá Spáni komust eyjarnar undir spænska stjórn en um tíma var Mallorca sjálfstætt konungsdæmi.
Veðurfar á Mallorca stjórnast nánast alfarið af Miðjarðarhafinu. Vetur eru mildir og rakir en sumrin eru heit og sólrík. Litlar sveiflur eru á hitastiginu innan hvers árstíma, gera má ráð fyrir 17°C í apríl. Í apríl eru blómin í sínum fegursta skrúða.
Göngulandið Besta göngusvæðið er fjallgarðurin, Serra Tramuntana, sem markar norðurhluta eyjarinnar frá Valldemossa til Pollenca. Þar eru tilkomumikil kalksteinsfjöll, gilskorin og skógi prýdd sem heilla fólk. Hátt í fjöllunum eru ólífulundir og afskekktir bæir og þorp sen líta eins út í dag og þeir hafa gert um aldir. Út við ströndina kúra fiskimannaþorp, bátaskýli og -hafnir við klettóttar strandir. Í aldanna rás hefur orðið til flókið kerfi göngustíga um óbyggðirnar. Stígarnir eru allt frá því að vera greiðfærir og vel merktir yfir í illfæra troðninga upp á hæstu tinda og afskekkta tanga. Stígarnir hafa um aldir verið ferðaleiðir bænda og annarra sem nýttu fjalllendið til að afla sér lífsviðurværis. Jafnframt nýttu pílagrímar, sjóræningjar og aðrar starfsstéttir stígana fyrir iðju sína. Kolagerðarmenn, kalksteinshöggvarar og snjósafnarar voru sérstaklega mikilvægir í þessu sambandi enda liggja þeirra leiðir um fáfarnar og afskekktar slóðir.
Gististaðir: Gist er gönguskálum sem reknir eru af náttúruverndaráði eyjaskeggja. Allt eru þetta nýlega uppgerð hús og sum mjög glæsileg. Ekki nauðsynlegt að bera með sér svefnpoka því rúmum fylgja teppi eða sængur. Hægt er að leigja rúmfatnað eða hafa með sér eigin lakapoka.
Matur er í öllum tilfellum dæmigerður fyrir mallorkíska menningu og því aldrei að vita nema bragðlaukum verði komið á óvart einhvern daginn eða kannski oft á dag. Allur matur nema kvöldverður á degi 7 er innifalinn en þá er gist í borginni Pollenca þar sem hægt er að velja um fjölda veitingastaða. Fiskur er einkennandi fyrir matarmenningu eyjarinnar. Tómatar, ólívur, hvítlaukur og brauð setja svip á flesta rétti. Á Mallorca eru framleidd fyrirtaks vín og einnig kryddaðir líkjörar af ýmsu tagi. Ávextir, s.s. appelsínurnar í Sóller verða menn einfaldlega að smakka. Þeir réttir sem boðið er uppá í gönguskálunum eru gjarnan mallorkískur heimilismatur, einföld matargerð en lystug. Tumba er t.d. einkennandi, fiskur, steiktur í ólívuolíu og borinn fram í tómötum og hvítlauk á leirfati. Skálaverðir útbúa piknikk fyrir göngumenn, hefðbundnar samlokur, boccadillos, vatn og ávexti.
þjórfé og ferðapeningar: Gjaldmiðillinn á Mallorca er Evra og nánast alls staðar í borgum og bæjum, er hægt að borga með greiðslukortum, debet jafnt sem kredit, auk þess sem hraðbanka er víða að finna. Eðlilegt er að gera ráð fyrir því að borga þjórfé á þeim stöðum þar sem þjónusta er veitt af hendi, sérílagi ef fólk er ánægt með þjónustuna.
Vegabréf: Ekki er krafist vegabréfsáritunar til Mallorca en nauðsynlegt er að vera með gilt vegabréf meðferðis.
| Dagsetning brottfarar | Komudagur | Verð per einstakling | Fáanleiki | |
|---|---|---|---|---|

English
Íslenska













