Spánn - Majorca - IMG93

Hápunktar

  • Allt innifalið!
  • Heillandi náttúra
  • Fornir fjallvegir
Verð frá: 235.000 ISK

Fáir vita að undanfarin ár hefur þessi vinsæla eyja og mannlífið þar gengið í endurnýjun lífdaga sem staður kyrrðar og náttúrfegurðar sem dregið hefur að fólk í gegnum aldir.

Í hugum margra er Mallorca eyja sumarleyfisstaður pakkaferðalanga í leit að sól, sandi og ódýrum drykkjum og víst er að af nógu er að taka. Færri vita hinsvegar að undanfarin ár hefur eyjan og mannlíf þar gengið í endurnýjun lífdaga sem staður kyrrðar og náttúrfegurðar sem dregið hefur að fólk í gegnum aldir. Náttúrufegurð er mikil og saga og menning við hvert fótmál. Óhætt er að segja að Majorca sé orðinn einn af vinsælli áfangastöðum gönguferðafólks í Evrópu.

Sjáið myndir frá einni ferð okkar til Mallorka.
 


  • Innifalið : Flug Keflavík - Palma - Keflavík, íslensk leiðsögn og fararstjórn, allur akstur eins og fram kemur í leiðarlýsingu, öll gisting eins og fram kemur í leiðarlýsingu, allur matur meðan á gönguferð stendur
    Hafa í huga : Hópstærð: 6 - 16 manns