Marokkó - Siroua - IMG91
Spennandi 6 daga gönguferð um Anti Atlas fjöllin í Marokkó. Leiðin liggur eftir ævafornum þjóðleiðum heimamanna, Berbanna um hið útkulnaða eldfjallasvæði Siroua. Múlasnar og kúskar þeirra trússa allan farangur og kokkur reiðir fram gómsætar máltíðir í áfangastöðum
- Útkulnuð eldfjöll og áveituræktun
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á afar spennandi ferð um Anti Atlas fjöllin í Marokkó. Um er að ræða 6 daga gönguferð um hið útkulnaða eldfjallasvæði Siroua þar sem gengið er eftir ævafornum þjóðleiðum heimamanna, Berbanna. Landslagið á svæðinu er mikilfenglegt og fjölbreytt bæði í formum og litadýrð. Við fyrstu sýn virðist landið hrjóstrugt en þar sem heimafólk hefur komið sér upp áveitum til ræktunar eru dalirnir grænir og frjósamir. Gestrisni Berba er margrómuð og líklegt að við njótum hennar á ferð okkar um afskekkt fjallaþorpin. Takmark ferðarinnar er að sjálfsögðu sjálfur Siroua tindurinn (3305m) hæsti tindur svæðisins. Þetta er frábær gönguferð um litríkustu fjöll N. Afríku og stórkostlegt tækifæri til þess að kynnast þeirri framandi menningu sem Marokkó býr yfir. Allur farangur er trússaður á múlösnum og dagleiðir eru að jafnaði 4 – 7 klst. Myndir úr páskaferðinni 2008 má sjá hér
Hápúnktar ferðar
* Fornar þjóðleiðir
* Þægilegar dagleiðir
* Ljúffengur matur og heillandi menning
* Litríkustu fjöll N. Afríku

Innifalið : Íslensk fararstjórn
Flug frá Keflavík til Marrakech og til baka
Öll gisting í Marokkó, 3 nætur hótel, 5 nætur tjald
Tjöld, tjalddýnur, eldhústjald og eldunaráhöld
Allur matur í gönguferð og tvær ferðamáltíðir (í akstri) Allur akstur eins og fram kemur í leiðarlýsingu. Enskumælandi fjallaleiðsögumaður
Trúss á farangri með múlösnum
Hafa í huga : Hópstærð 6 - 20 manns
Dagur 1: Flug frá Keflavík til Marrakesh
Þessi fyrsti dagur er flugdagur og eyðum við lunganum úr honum á flugi. Við komuna til Marrakech hittum við staðarleiðsögumanninn okkar og förum með honum á hótel. Við komum okkur fyrir og leiðsögumaður fer yfir ferðatilhögunina. Frjáls tími það sem eftir lifir kvölds. Upplagt er að hrista af sér flugslenið með því að rölta niður í Medínuna, markaðstorgið þar sem hægt er að fá sér að snæða og skoða vöruúrvalið.
Dagur 2: Marrakech – tizi n´Test – Taliouine – Tislit
Við ökum frá borginni austur til fjallanna. Leiðin er litrík, rauður jarðvegur, grænir hveitiakrar og fjölmargt annað framandi ber fyrir augu. Í þorpinu Ouirgane sem er við fjallsræturnar snæðum við hádegisverð áður en leiðin liggur upp í skarðið tizi n´Test (2130m) þaðan sem gott útsýni er til nærliggjandi fjalla. Áfram er haldið um Taliouine héraðið þar sem Arganar búa. Við erum stödd á mörkum anti Atlas og Souss sléttunnar og hækkum okkur upp á hásléttuna og erum brátt á áfangastað þar sem múlasnar eru hlesstir, við reimum skóna okkar og leggjum í göngu dagsins. Á tveimur tímum náum við á áfangastað og tjöldum til þessarar fyrstu nætur í mikilfenglegri gjá í 1544 m hæð.
Dagur 3: Tislit – Ait Amrane – Aghbalou Tizgui
Dagleiðin í dag byrjar í afar eyðilegu landi en fljótlega ber okkur um ræktarlönd heimafólks sem hugvitssamlegar áveitur gera möguleg. Hveiti og saffran eru helstu nytjaplöntur svæðisins og aldrei að vita nema við getum prúttað við kaupmann í einhverju þorpinu um kaup á dýrustu kryddjurt veraldar. Leiðin liggur um afskekkt þorp þar sem tíminn virðist hafa staðið í stað. Húsin eru eins og hengd utan í fjallshlíðarnar og það eina sem stingur í stúf við brúngráan lit þeirra eru litríkar hurðir og klæði kvenna og barna. Við höldum áfram upp á við og nemum staðar eftir uþb 6 klst göngu við Aghbalou Tizgui þar sem við sláum upp tjöldum í 2400 m hæð.
Dagur 4: Aghbalou Tizgui –Guiliz hryggur (2900m) – azib Tagrara
Við höldum áfram ferð okkar upp á við og tökumst á við fyrsta fjallstindinn okkar í dag Guiliz tindinn. Þangað ættum við að ná á þrem tímum og enginn verður svikinn af því sem þar bíður okkar, óviðjafnlegt útsýnið yfir Siroua dalinn og sjálfan Siroua tindinn sem við stefnum á. Áfram liggur svo leiðin um heiðalönd þar sem líklegt er að við rekumst á geitahirða með hjarðir sínar og sel þeirra hátt í fjallshlíðum. Við sláum upp tjöldum við lítinn læk rétt við Tagragra hella þar sem fjárhirðar Beni M’Zguid ættbálksins halda til. Göngutími 5klst.
Dagur 5: Azib Tagrera –Sirouatindur (3304) – azib Tissouitune
Dagleiðin í dag afhjúpar heldur betur fjölbreytileika landslagsins á þessu svæði. Við göngum um mikilfengleg gljúfur og óviðjafnanlegar klettamyndanir og komumst eftir ríflega 2ja tíma göngu upp á fjallshrygg. Stígurinn hlykkjast á milli þyrrkingslegra runna og á stangli eru grettistök sem bera við bláan himin. Siroua tindurinn er innan seilingar og útsýnið er stórfenglegt. Atlasfjöllin og Ouarzazate sléttan blasa við fyrir fótum okkar og við rætur Siroua má sjá forna gígtappa. Að lokinni göngu á tindinn liggur leiðin niður hlíðina, fyrst um eyðilegt landslagið en síðar ræktaða stalla heimafólks. Við tjöldum hjá selinu Tissouitine (2450m) við hús og garða úr hlöðnu grjóti. Göngutími 6 – 7 klst.
Dagur 6: Azib Tissouitine – Ait Tigga – Tinzarine
Við höldum áfram að lækka okkur og leiðin liggur um dali þar sem við getum spáð í áveituræktun heimafólks. Þorpin bera staðsetningu sinni merki. Fjallafólkið gerir ráð fyrir skepnunum í húsagerð sinni sem eiga sín sérstöku hólf í húsagarðinum. Við hækkum okkur upp í d’Anzounmer skarð (2732) og njótum útsýnis yfir Atlasfjöllin áður en við göngum niður fallegt gil sem liggur samhliða stöllum þeim sem heimafólk notar til saffranræktunar. Við getum drukkið í okkur saffranangan akranna og jafnvel gert góð kaup í lok dags þar sem við sláum upp tjöldum við þorpið Tinzarine. Göngutími 5 – 6 klst.
Dagur 7: Tinzarine – Tamazight – tizi n´Tichka – Marrakech
Eftir tveggja tíma göngu um afskekkta sveitina, sem okkur er farin að þykja heimilisleg, komum við að krossgötum þar sem bíllinn bíður okkar. Við ökum til baka til Marrakech um skarðið tizi n´Tichka (2260m) og getum notað tímann til þess að halda áfram að drekka í okkur þetta framandi og litríka landslag sem líður framhjá bílrúðunum. Rauð fjöll og grænir furuskógar blasa við okkur í norðurhlíðum Atlasfjallana, þetta útsýni er nánast ógleymanlegt. Við komum til borgarinnar í eftirmiðdaginn og höldum á hótel. Það sem eftir lifir dags er frjálst og ekki ólíklegt að einhverja fýsi í Medínuna.
Dagur 8:Marrakech
Þetta er dagurinn sem við höfum beðið eftir, dekurdagur í þessari heillandi borg þar sem baðhús heimafólks Hammam gætu verið í aðalhlutverki. Rík hefð er fyrir baðhúsferðum og þar er hægt að fá ýmsa þjónustu, eins og nudd og olíumeðferð að ógleymdu baðvatninu sem flestir hafa trúlega saknað á gönguferðalaginu. Markaðurinn stendur svo alltaf fyrir sínu og ólíklegt annað en að einhvrerjir taki sig til og prútti við kaupmenn þar á bæ. Gott að hafa það í huga að prúttið er hluti af kaupferlinu og því ætti enginn að hefja prútt sé ætlunin ekki að kaupa það sem prúttað er um.
Dagur 9: Marrakech – Keflavík
Þá er dvöl okkar í þessu heillandi landi á enda og dagurinn í dag fer að mestu í flug og flugvallarvist, áætluð koma til Íslands undir miðnætti.
Búnaðarlisti:
Persónulegur búnaður
Bakpoki, dagpoki 30-40Lítra
Svefnpoki, góður sumarpoki
Fatnaður
Þunn nærföt, bæði síðar nærbuxur og nærbolur úr ull eða góðu gerviefni,
Hlýir sokkar (minnst 2 pör) og þunnir innri sokkar fyrir þá sem vilja
Þunnir vettlingar eða hanskar (flís eða ull)
Belgvettlingar
Flísjakki eða eitthvað sambærilegt
Hlífðarjakki með góðri hettu, t.d. goretex
Göngubuxur
Hlífðarbuxur
Hlý húfa, sólhattur
Ferðafatnaður
Skóbúnaður
Mjúkbotna gönguskór sem styðja vel við ökla
Strigaskór eða sandalar fyrir tjaldbúðirnar og annað
Annað
Göngustafir
Myndavél, filmur/minniskort, rafhlöður
Sólarvörn og varasalvi (með sólarvörn)
Tannbursti, tannkrem
Skyndihjálparpoki. Lítill og léttur;
Skordýrafælu (t.d. DEET)
Immodium
Magalyf, antibacterial
Höfuðverkjalyf, (parasetamól)
Önnur lyf eftir þörfum
Hælsærisplástur ofl
Bakteríudrepandi efni í vatn, t.d. Iodine eða annað
Blautklútar til þvotta (t.d. Bay wipes eða Wet One´s)
Sótthreinsandi krem/vökvi til handþvotta
Ferðahandklæði
Ennisljós og rafhlöður
Vatnsflaska og hitabrúsi
Eyrnatappar
Vegabréf
Vasahnífur (EKKI pakka honum í handfarangur)
Klósettpappír
Bakpoki eða tuðra fyrir annan farangur
Magaveski f. peninga/vegabréf
Góð bók
Ferðasaga
Almennt:
Marokkó er á norðvestur horni Afríku, á strönd að Miðjarðarhafi og Atlandshafi. Marokkó er ríflega 7 sinnum stærra en Ísland að flatarmáli og þar búa rúmlega 31 milljón manns. Þjóðin samanstendur af aröbum og berbum og auk arabísku eru talaðar nokkrar berba mállýskur. Franska er verslunarmálið á svæðinu sem ekki kemur á óvart þegar horft er til þess að Marokkó var frönsk nýlenda þar til árið 1956. Enska er þó tungumál sem sækir á og einhver hluti landsmanna talar hana ágætlega. Marokkó er að mörgu leyti land aðstæðna, með annan fótinn í nútímanum en hinn aftur í öldum. Sláandi munur er t.d. á mannlífi í borg og sveit. Helmingur landsmanna fæst við landbúnað en þjónusta og iðnaður sækja á. Marokkó er á GMT tíma allt árið rétt eins og Ísland.
Menning:
Menningin er margslungin og dregur keim af þeim ólíku straumum sem sett hafa mark sitt á hana í aldanna rás. Berbar eru upprunalegir íbúar svæðisins en búsetu þeirra í N. Afríku má rekja allt aftur til nýsteinaldar. Í dag eru meirihluti íbúa Marokkó af berbaættum en arabar sem lögðu landið undir sig á 7. öld hafa óneitanlega markað sín menningarlegu spor. Í áranna rás hafa svo vestræn áhrif síast inn og Marokkóbúar hafa verið óhræddir við að blanda þessu öllu saman. Í dag er ekki ólíklegt að sjá karlmenn skarta hefðbundnum jellabia kuflum utan yfir vestræn jakkaföt eða hafnabolta húfu tróna á toppi túrbans. Þrátt fyrir þessi augljósu vestrænu áhrif ber að hafa í huga að Marokkóbúar líta á fótleggi og axlir sem prívat parta hvers og eins, sem bæði körlum og konum ber að hylja. Í augum heimafólks eru hlírabolir og stuttbuxur nærfatnaður og því er trúlega eðlilegt að klæðast efnismeiri fatnaði, t.d. léttum skyrtum og hálfsíðum buxum/pilsum.
Flestir Marokkóbúar eru múslimar og ber landið allt og menningin keim af því. Margar fallegar moskur eiga eftir að verða á vegi okkar og við getum lagt eyru við bænaköllunum sem frá þeim berast fimm sinnum á sólarhring. Ólíkt mörgum stöðum er ferðafólki ekki veittur aðgangur að moskum í Marokkó svo við verðum að láta okkur nægja að hlusta á bænaköllin og dást að byggingunum að utan. Í augum heimafólks eru moskurnar helgir staðir sem eingöngu múslimar hafa aðgang að og sjálfsagt að virða það.
Marokkóbúar eru þó hófsamir enda hefur menningin í aldanna rás verið háð samskiptum og samneyti ólíkra menningarhópa. Það kann að koma einhverjum spánskt fyrir sjónir að fram að stofnun Ísraelsríkis 1948 bjuggu um hálf miljón gyðinga í Marokkó sem var fjölmennasta gyðingabyggð í N. Afríku. Í dag eru uþb 7000 gyðingar búsettir í landinu.
Líklegt er að margir hafi með sér myndavél enda aðlilegt að festa það sem manni kemur spánskt fyrir sjónir á filmu eða greipa í bæt á minniskubbi. Við skulum þó hafa í huga að það er sjálfsögð kurteisi að óska eftir leyfi ef okkur langar að festa heimafólk á filmuna, áður en við smellum af. Annars kann saklaus myndataka okkar að virðast móðgandi og getur valdið leiðindum. Sjálfsagt er að semja sig að siðum heimafólks og bera virðingu fyrir þeim gildum sem í heiðri eru höfð. Almennt séð eru Marokkóbúar höfðingjar heim að sækja og gestrisni þeirra viðbrugðið. Kveðja þeirra As Salamu Alaykum, sem þýðir friður sé með yður, ætti að vera farin að hljóma kunnuglega í lok ferðar. Gott er þá að geta svarað í sömu mynt með kveðjunni Alaykum As Salam!
Veðrátta:
Loftslag í Marokkó er þurrt mestan hluta ársins, en vænta má regns frá nóvember fram í mars. Vert er að hafa í huga að loftslag og veðrátta er breytilegt eftir því hvar í landinum fólk er statt. Hitastigið er talsvert hærra sunnan til í landinu og uppi í fjalllendinu er það að sama skapi lægra, jafnvel undir núllinu. Meðalhiti í borginni Marrakech í mars er á bilinu 11° - 24°C.
Heilsa og hreinlæti:
Hreinlæti heimamanna í ferðaþjónustu er mjög gott og líklega er óhætt að borða allt sem boðið er upp á, þar með talið ávextir og grænmeti. Ekki er þó ráðlegt að skipta við götusölufólk sem kann að hafa ýmislegt lostæti í boði við fyrstu sýn. Nauðsynlegt er að hugsa vel um vökvabúskap líkamans í fjallagöngum og drekka minnst 2 l á meðan á göngu stendur. Ekki er ráðlegt að drekka úr fjallalækjum hversu freistandi sem það kann að virðast heldur drekka soðið vatn, eða setja þartilgerðar vatnshreinsitöflur í drykkjarvatnið.
Bólusetningar:
Hefðbundanr barnasprautur þurfa að vera í lagi, mænusótt, stífkrampi og barnaveiki. Auk þess er nauðsynlegt að hafa bólusetningar gegn taugaveiki og lifrarbólgu A og jafnvel lifrarbólgu B. Rráðfærið ykkur við heimilislækninn eða Heilsugæsluna sem hefur ferðamannabólusetningar á sinni könnu. (5851300, símatími 9 – 10 og 15 – 16 daglega, nema um helgar).
Matur:
Allur matur er innifalinn í ferðinni nema kvöldverðir í Marrakech á fyrsta og síðasta degi ferðar. Matarmenning heimafólks er fjölbreytt og margir ljúffengir réttir í boði sem vert er að prófa. Ráðlegt er að hafa orkunasl og sætmeti með sér að heiman.
Matarmenningin í Marokkó er ólíkt mörgum löndum í Afríku, með eindæmum skemmtileg og fjölbreytt. Er nær að halda að heimafólk hafi tileinkað sér það besta þeirra ólíku hefða sem til grundvallar liggja. Útkoman eru ljúffengir réttir þar sem krydd og ferskleiki hráefnisins leika við bragðlaukana. Grænmetisætur þurfa ekki að hafa áhyggjur því kjöt er síður en svo meginuppistaðan í matargerð heimafólks.
Tajine og kúskús eru trúlega kunnustu þjóðarréttirnir. Tajine er lambakjöt og grænmeti eldað hægt í þartilgerðum tajine-potti, kryddað á sína vísu og kannski ekki svo ósvipað íslensku kjötsúpunni þó kryddið geri bragðið framandi. Kúskús er aftur á móti meðlæti, ómissandi hvort heldur með kjöt eða grænmetisréttum. Kúskúsið er upprunnið í N. Afríku og unnið úr durum hveiti. Matreiðsla þess er tímafrek enda er það oftast gufusoðið og þá jafnvel tvisvar eða þrisvar. Ekki er svo úr vegi að smakka á Harira, hinni matarmiklu grænmetissúpu þar sem linsubaunir, kjúklingabaunir, laukur, tómatar og ferskar kryddjurtir sameinast í himnesku bragði.
Eins og flestir vita er neysla áfengis ekki leyfð skv trúarritinu Kóraninum. Hins vegar er því svo farið að Marokkóbúar framleiða bæði bjór og vín og hæglega má nálgast hvoru tveggja á helstu hótelum og í tilteknum verslunum í stærri borgum. Þjóðardrykkur Marokkóbúanna er óneitanlega mintuteið sem er dísætt og fátt bragðast betur þegar komið er í tjaldstað eftir dagleið á fjöllum.
Þjórfé og ferðapeningar:
Gjaldmiðillinn í Marokkó er dirham. Gengi dirhams gagnvart bandaríkjadal er nokkuð stöðugt, fyrir US$ 1 fást rúmlega 8 dirham. 12. mars jafngilda 9.3 krónur einum dirham. Flest betri hótel taka við kreditkortum og helstu bankar eru með hraðbanka á sínum snærum.
Vegabréfsáritanir:
Nauðsynlegt er að vera með gilt vegabréf með sér á ferð um Marokkó en ekki er krafist vegabréfsáritunar.
Farangur:
Merkja skal allar töskur vel og kanna eftir öll tengiflug hvort töskur séu enn á réttri leið (Transfer-desk flugvalla geta hjálpað við það).
Hertar reglur varðandi handfarangur:
Gott er að lesa bækling Flugmálastjórnar um hertar reglur varðandi handfarangur! Þær upplýsingar er að finna hér
Símasamband:
Gsm símasamband er víðast hvar hægt að reiða sig á hvort heldur í sveit eða borg.
Internet:
Í stærri borgum er internet víða aðgengilegt gegn vægu gjaldi.
Leiðsögn og fararstjórn:
Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum allan tímann. Í Marokkó taka heimamenn við leiðsögn og annarri þjónustu en matsveinn og múlasnahirðar fylgja okkur á ferðum okkar. Allur farangur er trússaður á múlösnum í þessari ferð.
Ekki innifalið í verði:
Persónulegur búnaður eins og fram kemur á búnaðarlista
Kvöldmatur í Marrakech fyrsta og tvö síðastu kvöldin
Hádegisverður í Marrakech á síðasta degi
Drykkir og þjórfé
Ferða- slysa- og farangurstrygging
Önnur þjónusta sem ekki er tekin fram í leiðarlýsingu
Aukagreiðsla vegna einsmanns herbergis og tjalds er 24.500 kr

English
Íslenska

















