Grænland - Þvert yfir Grænlandsjökul - IMG64
Fjögurra til fimm vikna skíða leiðangur yfir Grænlandsjökul.
-Heimskautaleiðangur á heimsmælikvarða
Fjögurra til fimm vikna skíða leiðangur
6-8 virkir göngutímar á dag
540 kílómetrar á jökli (600 km alls)
900 - 2500 m.y.s.
250 metrar mesta hækkun
Stutt lýsing:
Í byrjun maí 2011 standa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fyrir sjötta leiðangri sínum yfir Grænlandsjökul og er hann sem fyrr opinn áhugasömu fjalla- og útivistarfólki. Leiðangurinn er farinn í samvinnu við Adventure Consultants á Nýja Sjálandi, sem meðal annars skipuleggja ferðir á Mount Everest ár hvert.
Áhugasömum má benda á að gönguskíðaferð á Vatnajökul eða yfir Sprengisand að vetrarlagi er tilvalinn undirbúningur fyrir leiðangur yfir Grænlandsjökul.
Leiðangur af þessu tagi er einstök lífsreynsla.

Innifalið : Leiðsögn, leyfi frá Grænlenskum yfirvöldum, leiðangurstryggingar, flug frá Reykjavík til Kulusuk, flug eða bátur frá Kulusuk til Tasilaq, þyrluflug frá Tasilaq á Hahn jökul, flug frá Syðri Straumfirði til Reykavíkur, púlkur, flutningur, allur matur í ferðinni, tjöld, sameiginlegur útbúnaður og eldunaráhöld.
Hafa í huga : Gera þarf ráð fyrir 2-3 aukadögum í lok ferðar vegna flugskilyrða frá Grænlandi.
Lengd : 3-4 vikur

English
Íslenska

















