Grænland - Liverpoolland, fjallaskíðaferð - IMG60
Frábær fjallaskíðaferð á fáfarinni austurströnd Grænlands þar sem sólin skín allan sólarhringinn
Fjallaskíðaferð til Liverpoollands á Norðaustur Grænlandi
Í maí mánuði bjóða Íslenskir fjallaleiðsögumenn upp á spennandi skíðaferð til Liverpoollands á Norðaustur Grænlandi. Hér er á ferð krefjandi fjallaskíða/telemark ferð þar sem glímt er við helstu tinda Liverpoollands. Farið er með hundasleðum upp í fjallasvæði Liverpoollands þar sem slegið verður upp tjaldbúðum. Úr tjaldbúðum er svo farið í dagsferðir ýmist á nálæga tinda eða skíðað niður að sjávarmáli þar sem gríðarstórir borgarísjakar eru frosnir inn í lagnaðarísinn. Frábær fjallaskíðaferð á fáfarinni austurströnd Grænlands þar sem sólin skín allan sólarhringinn.

Innifalið : Leiðsögn og fararstjórn, Flug til Grænlands og baka með flugvallarsköttum, þyrluflug til Ittoqqortoormiit, gisting á gistiheimili í Ittoqqortoormiit eftir skíðaferð, hundasleðaflutningur á fólki og farangri, svefntjöld og matartjald, mataráhöld og allur matur að undanskilinni lokamáltíð á Grænlandi.
Aukagjald: fyrir 4 til 5 manna hóp, 50.000kr. á mann.
Ekki innifalið : Personal equipment, insurance and expenses, dinner the last night in Greenland.
Upphafsstaður : Ferðin hefst og endar á flugvellinum í Reykjavik.

English
Íslenska

















