Dagur 1: Flogið frá Reykjavík til Kulusuk og svo stígum við um borð í bát sem flytur okkur til Tasiilaq, höfuðstaðar Ammassalikeyjunnar. Við stöldrum aðeins við í bænum og virðum fyrir okkur mannlífið áður en við öxlum pokana okkar og leggjum upp í hina eiginlegu gönguferð. Fyrsta dagleiðin verður þó ekki löng, því í botni Tasiilaq fjarðarins sláum við upp tjöldunum og þeir sem tóku veiðistöngina með geta hugað að silungi annað hvort í fjöruborðinu eða í nærliggjandi vatni eða á.
Dagur 2: Í dag höldum við á vit vatna og fjalla. Við höldum hina svokölluðu Vatnaleið, fylgjum Qortolotoq vötnunum sem liggja í röð á millri mikilfenglegra granítfjallanna sem eru svo gjörólík íslensku fjöllunum. Vestan megin gnæfir Mittivakkat jökullinn við himin og þegar dregur nær kvöldi sláum við upp tjöldum við eitt af innstu vötnunum.
Dagur 3: Við höldum áfram göngu okkar um þetta óviðjafnanlega svæði og tökum stefnuna í vestur, í átt að Sermilik firðinum. Við höldum yfir skarð þar sem jökulsorfið stórgrýtið skapar ævintýralega umgjörð. Við fylgjum svo jaðri Mittivakkat jökuls og þverum annað hvort litla skriðjökulstungu eða við frískum upp á tærnar og vöðum ána sem á upptök sín í skriðjöklinum. Skömmu síðar komum við í gróið dalverpi þar sem við tjöldum.
Dagur 4: Í dag tökum við stefnuna niður að Sermilikfirði og þræðum mishæðótt landið, þar sem jökulsorfnar klappir og gróið land skiptist á. Sermilikfjörður er mikilfenglegur af hæðarbrúnunum, fullur af stórum borgarísjökum sem lóna í vatnsborðinu. Nokkuð vatnsmikil jökulá rennur út í fjörðinn og þarf að gæta sjávarfalla til þess að vaða hana í fjörunni. Ef veður leyfir tjöldum við í hvítum sandi fjörunnar og njótum þessa ómótstæðilega útsýnis, risavaxnir borgarísjakar á bláum haffletinum.
Dagur 5: Við snúum baki við fjörunni og höldum á ný til fjalla. Förum nú Sermilikveginn, hina hefðbundnu leið veiðimannanna. Leiðin liggur um þröngt fjallaskarð og svo niður með dal girtum bröttum tindum á báða bóga. Í dalbotninum er fjöldi vatna og við veljum okkur eitt til að tjalda við með óviðjafnanlegu útsýni yfir Tasilaq-fjörðinn.
Dagur 6: Við erum ekki langt frá Tasiilaq og eftir létta göngu komum við til bæjarins. Nú gefst okkur kostur á langþráðu steypibaði því við ætlum að gista á gistihúsi þessa síðustu nótt okkar á Ammassalik. Við höfum nægan tíma til þess að skoða mannlífið það sem eftir lifir dags og upplagt að koma við á safni bæjarins eða í kirkjunni þá er heldur ekki amalegt að kíkja í kaupfélagið eða litlu bókabúðina þar sem ýmislegt fleira en bækur er á boðstólum.
Dagur 7: Við tökum daginn snemma og höldum með bát til Kulusuk. Við höfum tíma til þess að skoða okkur um í þorpinu í Kulusuk þar sem langflestir íbúar fást við veiðar. Eftir hádegið fljúgum við svo til Reykjavíkur þar sem lent er undir kvöld.